utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka ráðherra fyrir skýrsluna og ræðuna sem og þá fjölmörgu fundi sem við höfum átt með ráðherra í utanríkismálanefnd það sem af er kjörtímabilsins, og ég veit og vona að þeir verði miklu fleiri. Árið 2025 var fjórða árið sem árásarstríð Rússlands á hendur Úkraínu stóð yfir. Ég held að margir hafi eins og áður haft þá von í brjósti að það ár yrði það síðasta, reyndar eins og mörg árin þar á undan, en sú varð því miður ekki raunin. Tilraunir til að binda enda á stríðið hafa engan árangur borið en sumar þeirra hafa raunar meira miðað að því að þvinga Úkraínu til uppgjafar, kannski ekki til skilyrðislausrar uppgjafar en uppgjafar engu að síður. Baráttuþrek Úkraínu hefur gert það að verkum að þessi hugrakka þjóð hefur staðið af sér bæði árásir Rússa og þennan þrýsting. Líkt og fram kemur í skýrslunni hafa íslenskir ráðamenn heimsótt Úkraínu á síðasta ári og raunar þessu líka. Það hafa jafnt forsætisráðherra sem utanríkisráðherra gert og einnig forseti Alþingis. Það hefur sá sem hér stendur líka gert, bæði á síðasta ári og raunar einnig á þessu ári. Nefna má fleiri þingmenn í því sambandi, til að mynda hv. þm. Sigurð Helga Pálmason og nýjasta meðlim í Félagi fyrrum alþingismanna, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur. Ég veit að þessar heimsóknir skipta máli og senda mikilvæg skilaboð um stuðning til úkraínsku þjóðarinnar. Atburðir eins og þessir breyta viðhorfum þjóða. Þegar einhver ræðst á þig og einhver kemur til varnar þá veistu hver er vinur þinn og hver er óvinur þinn.
Virðulegur forseti. Það var lengi til umræðu í Úkraínu hvort líta ætti til austurs eða vesturs og fylkingar tókust á um það. Ólöglegt innrásarstríð Rússlands á hendur Úkraínu tók til í þeirri umræðu. Mikill meiri hluti Úkraínumanna styður aðild Úkraínu að NATO og enn sterkari meiri hluti aðild að Evrópusambandinu. Í hvoru tveggja sjást tölur á bilinu 70–90% eftir könnunum. Stjórnmálamenn landsins eru gott sem einhuga um þessi mál. Þess má geta að viðhorf okkar Íslendinga hafa einnig breyst. Viðhorf til NATO hafa aldrei mælst jákvæðari. Það sést í könnunum sem og hér á þingi. Viðhorf til Evrópusambandsins eru líka jákvæðari en oft áður. Við sáum stuðning við aðild að ESB vaxa eftir árið 2022 og meiri hluti hefur mælst fyrir því að ljúka viðræðum við Evrópusambandið og gerir enn í flestum könnunum þrátt fyrir að stuðningur við aðildina sjálfa hafi dvínað; það síðarnefnda þarf í senn að vera okkur Evrópusinnum vatnsgusa og hvatning. Allt þetta hnígur að því að á tímum sem þessum áttar fólk sig á því að það er betra að eiga fleiri vini en færri og að vera í fleiri bandalögum en færri.
Tvennt hefur staðið upp úr í utanríkismálanefnd á undanförnum misserum. Í fyrsta lagi er það umræðan um öryggis- og varnarmál. Síðastliðið vor var unnið að því að leggja drög að nýrri stefnu Íslands í öryggis- og varnarmálum, stefnu sem kom til umræðu í þinginu síðastliðið haust og var síðan samþykkt hér í upphafi þessa árs. Ég vil ítreka ánægju mína með að okkur hefur tekist að sameinast um stefnu í öryggis- og varnarmálum. Þetta er ekki hlutur sem gott er að deilur séu um. Stefnan hvílir á aðild okkar að NATO og varnarsamningi okkar við Bandaríkin og nefnir svæðisbundið samstarf en líka tvíhliða samstarf við ríki Evrópu og Kanada. Þarna stóðst þingið prófið og ég vil þakka þingmönnum allra flokka á Alþingi fyrir það samstarf sem til þessa leiddi. Ef við tölum síðan um hluti þar sem einróma samþykkt Alþingis er eilítið langsóttari, alla vega sem stendur, en hver veit, þá hefur umræða um ESB-kosningu, viðræður og aðild, ekki farið fram hjá neinum. Ég er þeirrar skoðunar, og hef verið í 100 ár, að full aðild Íslands að Evrópusambandinu yrði til hagsbóta fyrir okkur. Fyrir því eru margs konar rök. Ég vil fyrst nefna hin efnahagslegu rök. Við getum labbað inn í banka í Kvosinni og fengið, hérna gjörið svo vel, fasteignalán upp á 8–9% vexti, á óverðtryggðum vöxtum, til kaupa á fasteign. Á evrusvæðinu eru þessir vextir 3–4%. Við erum sem sagt að borga a.m.k. tvöfalt of mikið í vexti. Svo kemur fólk með ýmiss konar samanburð og þarna eru lönd sem eru með hærra hlutfall af fólki sem býr í eigin húsnæði og lægra hlutfall af fólki sem býr í eigin húsnæði, lönd með hærra atvinnuleysi en við og lönd með lægra atvinnuleysi en við, lönd með hærri landsframleiðslu á íbúa og lönd með lægri landsframleiðslu á íbúa, en öll þessi lönd eru með lægri vexti. Við getum verið ríkt ríki þar sem fólk borgar vexti sem við þurfum ekki að skammast okkar fyrir og það er eitthvað falskt val að halda því fram að við þurfum að velja þarna á milli. Þetta voru efnahagslegu rökin m.a. og svo eru það pólitísku rökin.
Evrópusambandið er pólitískt hagsmunabandalag. Þjóðirnar sem þarna eru eru lýðræðisríki sem deila með okkur gildum og við eigum að taka þátt í því hagsmunabandalagi sem Evrópusambandið er. Það skiptir máli fyrir okkur að hafa bandamenn. Það skipti Dani svo sannarlega máli að hafa bandamenn og að vera í Evrópusambandinu í tengslum við Grænlandsmálið og við eigum að fjölga þeim þjóðum sem telja sig lagalega, efnahagslega og pólitískt skuldbundnar til að vera með okkur í liði. Svona í framhjáhlaupi þá sé ég ekki að sú framtíðarsýn þar sem Evrópa vígvæðist mjög mikið en splundrist um leið pólitískt sé endilega sérstaklega eftirsóknarverð. Hún er það ekki. Sagan geymir enda ekki dæmi þess að það hafi leitt okkur á góða braut að Evrópa sé vígvædd en pólitískt sundruð. Við eigum að vera viðbúin en sameinuð. Þannig tryggjum við bæði frið og öryggi.
Og svo er það fullveldið og sjálfstæðið, og þetta finnst mér mikilvægt. Ef við ræðum þessi hugtök þá mætti kannski spyrja Úkraínumenn, sem berjast á vígvellinum eða reyna að halda á sér hita í sundursprengdum húsum sínum, hvort þeir líti svo á að þeir séu að berjast fyrir fullveldi sínu. Auðvitað er það svo. Andstæðingurinn er beinlínis með það sem ástæðu stríðs að hann vilji ekki að þeir gangi í NATO eða Evrópusambandið. Auðvitað er þetta barátta fyrir fullveldi, ekkert annað. Fullveldið er enda réttur til að velja sér bandalag, efnahagsbandalög, varnarbandalög. Fólk getur auðvitað haft skoðun á því hvort þessi bandalög séu góð fyrir okkur eða ekki en rétturinn til að ákveða hvort maður tekur þátt í þeim er eins mikill kjarni í fullveldishugtakinu og hugsast getur. Þannig eigum við að nýta okkur fullveldið til að velja okkur gjaldmiðil sem hentar okkur, til að tryggja okkar varnir eða til að taka þátt í bandalögum sem tryggja efnahagslegt öryggi okkar. — Forseti. Ég hef lokið máli mínu.