utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég skil hann þá þannig að hann sé sáttur við það að hæstv. forsætisráðherra ákveði upp á sitt einsdæmi hvort samningur sé lagður fyrir vegna þess að hún hafi umboðið. Það er í raun og veru kannski það sem er aðalspurningin: Er hv. þingmaður sáttur við það að einn ráðherra í ríkisstjórninni, þótt það sé hæstv. forsætisráðherra, hafi þetta vald til að ákveða hvað sé góður samningur og hvað ekki og ákveða hvort hann verði lagður fyrir þjóðina?
Það var mjög margt áhugavert sem kom fram í ræðu þingmannsins og í morgun en við erum að reyna að skilja þessa alþjóðasamvinnu og Evrópuvegferð og mig langar því að spyrja hv. þingmann. Nú hefur komið fram að það sé ekkert til í því að aðlögun hefjist eftir að þjóðin mögulega segi já. Ef hún segir já í ágúst er engin aðlögun að fara að hefjast en í hina röndina heyrum við að það væru alla vega engar afturkræfar breytingar. Þetta er stórkostlega mikill munur. Hvernig lítur hv. þingmaður á þetta? Erum við að fara að byrja aðlögun en ef við förum ekki inn í Evrópusambandið þá getum við alltaf breytt lögum? Er það það sem meiri hlutinn er að reyna að segja okkur? Mér finnst þetta ekki alveg tala saman. Annars vegar er okkur sagt að það verði engin aðlögun en hins vegar er sagt engin óafturkræf aðlögun. Hvort er þetta aðlögun sem hefst eða er verið að segja að hún sé ekki óafturkræf ef við segjum nei í seinni þjóðaratkvæðagreiðslu? Þessu á ég mjög erfitt með að fá svar við en mig grunar að það sé helst hv. þm. Pawel Bartoszek sem gæti leitt mig í sannleika um þetta.