157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[19:34]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og ég þakka honum líka fyrir lokaorðin í þessu svari. Við erum alla vega komin með einn stjórnarsinna sem viðurkennir að það sé aðlögun í gangi. Enda er náttúrlega spurningin: Hvað gerðum við við þessar 8.000 milljónir sem áttu að fara í aðlögun en fóru ekki í aðlögun? Stálum við þeim eða byggðum við brú eða eitthvað eða var Evrópusambandið að nota þessa peninga til að kaupa þjóðina til fylgis við aðildarumsókn alveg óháð því hvað stendur í samningnum um aðlögun? Nei, auðvitað ekki og hv. þingmaður tók dæmi sem honum fannst alveg frábært, hefur áhuga á tölum og fannst bara Hagstofan vera miklu betri eftir að það er búið að dæla í hana peningum. Flott, það var nú ýmislegt annað gert. Ég held að ef menn hefðu, sem menn gerðu sem betur fer ekki, aðlagað tollkerfið okkar og tollinn að Evrópusambandinu, þá hefði það verið dýrt grín og ekki gott. En hv. þingmaður hefur fram til þessa ekki verið neitt sérstaklega fylgjandi því að við fengjum einhverjar sérlausnir, undanþágur, hann hefur bara viljað ganga í Evrópusambandið, sem er bara strangheiðarlegt og ég ber virðingu fyrir því. En í viðtölum núna er hv. þingmaður að tala um að hann vilji tvenns konar undanþágur, annars vegar varanlegar undanþágur og hins vegar tímabundnar undanþágur. Getur hv. þingmaður útskýrt: Hvaða varanlegu undanþágur vill hv. þingmaður fá og hvaða tímabundnu undanþágur vill hv. þingmaður fá? Það væri mjög áhugavert að vita það. Og af því að hv. þingmaður talar um bandamenn og annað slíkt. Hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af því hvernig Evrópusambandið hefur komið fram við félaga sína innan Evrópusambandsins? Af því að hv. þingmaður þekkir það mjög vel að það er ýmsum brögðum beitt til að ná sínu fram innan Evrópusambandsins (Forseti hringir.) og það er erfitt þegar þú ert kominn inn í Evrópusambandið að verjast slíku.