utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir ágætisyfirferð. Það er alveg hárrétt að við erum hluti af GIUK-hliðinu. Það er svona ákveðin varnar- og öryggislína bæði fyrir Bandaríkin og fyrir Evrópuríkin líka, ekki bara fyrir Ísland, Bretland og Grænland heldur allt þar í kring. Ég hef alltaf talað um það, þegar verið er að ræða um Evrópusambandið, að veigamestu rökin séu efnahagsleg rök. Þetta snýst bara um efnahagslega velsæld þjóðarinnar, vexti og verðbólgu, og hv. þingmaður veit nákvæmlega hvað ég er að fara með því. En mér finnst hins vegar á undanförnum misserum að varnar- og öryggishlutinn skipti bara miklu meira máli í dag en hann gerði fyrir ekkert svo löngu. Þetta eru ekki endilega stærstu rökin fyrir því að þétta raðirnar með Evrópu en þetta eru orðin miklu stærri og veigameiri rök en áður. Ég inni hv. þingmann eftir því hvort hann geti ekki alveg fallist á að þetta sé bara orðinn meiri partur af jöfnunni en áður var.
Hv. þingmaður nefndi Grænland og tengsl Grænlendinga við Dani. Við getum þá auðvitað líka farið, einmitt af því að Bandaríkin voru nefnd, yfir í þau orð Bandaríkjaforseta og reyndar fleiri ráðamanna í Bandaríkjunum um að þeir verði að eignast Grænland af því að það sé partur af þeirra varnar- og öryggishagsmunum. Nákvæmlega það sama á við um Ísland, nákvæmlega sömu rök. Ég veit að kollegar okkar í Danmörku, a.m.k. þeir sem ég hef talað við, hafa mikið talað um að þarna skipti ekki bara máli að vera í þéttu samtali yfir Atlantshafið í gegnum NATO, þarna hafi pólitísk samstaða Evrópuríkja á vettvangi Evrópusambandsins líka haft gríðarmikið að segja. Mig langaði að spyrja hv. þingmann hvort þetta sé ekki eitthvað sem við verðum að taka með í jöfnuna. (Forseti hringir.) Bandaríkin eru ekki það sama og þau voru og öryggis- og varnarhagsmunir Íslendinga eru ekkert endilega á nákvæmlega sama stað og þeir voru, frekar en annarra í álfunni. Er það ekki bara rétt mat?