utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Herra forseti. Við ræðum hér skýrslu utanríkisráðherra fyrir árið 2025, mjög fínt plagg og víða komið við, en umræðan í dag hefur kannski einkennst svolítið af umræðu um varnar- og öryggismálin, kannski ekki skrýtið miðað við þær aðstæður eða þá daga sem við upplifum þessi misserin þar sem sú umræða hefur raunverulega tekið allt yfir.
Herra forseti. Ég hef í mínum störfum hér á Alþingi lagt áherslu á utanríkismál, öryggismál, varnarsamstarf og stöðu Íslands í Norður-Atlantshafi og á norðurslóðum í að verða tíu ár. Ísland er fámennt ríki að íbúafjölda en landfræðilega er það stórt ríki í alþjóðlegu öryggissamhengi. Landfræðileg staða landsins á milli Norður-Ameríku og Evrópu og nálægðin við norðurslóðir er ákaflega mikilvæg strategískt.
Meginstoðir íslenskra utanríkis- og varnarmála hafa lengi verið aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu, NATO, frá árinu 1949 og varnarsamningurinn við Bandaríkin frá árinu 1951. Tvíhliða varnarsamningur við Bandaríkin á 75 ára afmæli eftir átta daga. Nú er spurning hvort því verður fagnað með einhverjum hætti í kannski næstu viku. Þessar stoðir hafa tryggt Íslandi öryggi í áratugi. Ísland hefur ekki eigin her en hefur byggt varnir sínar á samstarfi vina og bandalagsríkja. Það fyrirkomulag kallar á virka þátttöku Íslands, skýra stefnu og skilning á því að öryggi fæst ekki án ábyrgðar. Það hefur komið fram og fyrrverandi og núverandi hæstv. utanríkisráðherrar hafa bent á að það er mikilvægt að Ísland sé trúverðugur þátttakandi og verðugur bandamaður í sameiginlegu varnarsamstarfi lýðræðisríkja.
Innrás Rússa í Úkraínu 24. febrúar 2022 markaði tímamót í evrópskum öryggismálum. Innrásin sýndi með afgerandi hætti að friður og stöðugleiki í Evrópu eru ekki sjálfgefin gæði. Öryggisumhverfið í Evrópu hefur gjörbreyst, ekki aðeins í Austur-Evrópu heldur einnig á Norður-Atlantshafi og á norðurslóðum. Varnarsamstarf, viðbúnaður, innviðir og pólitísk samstaða er kannski mikilvægari í dag heldur en hefur verið mjög lengi, a.m.k. síðan á tímum kalda stríðsins. Fyrir Ísland þýðir þetta að utanríkisstefnan þarf að taka mið af breyttum veruleika þar sem harðari valdapólitík, aukin hernaðarumsvif og samkeppni stórvelda hafa áhrif á nærumhverfi okkar.
Í þessu samhengi skipa norðurslóðir stóran sess. Um árabil var gjarnan talað um norðurslóðir sem lágspennusvæði þar sem ríki gætu átt friðsamlegt samstarf þrátt fyrir ágreining annars staðar. Sú mynd hefur gjörbreyst á undanförnum árum. Loftslagsbreytingar, bráðnun hafíss, nýjar siglingaleiðir, aukinn aðgangur að auðlindum og vaxandi áhugi stórvelda hafa aukið strategískt mikilvægi svæðisins. Þegar hernaðarleg spenna eykst í Evrópu og Rússland sýnir aukna hörku í utanríkis- og öryggismálum verður Norður-Atlantshafið og norðurslóðir enn mikilvægara öryggissvæði. Ísland er í landfræðilegri lykilstöðu í tengslum við norðurslóðir. Landið liggur landfræðilega á mikilvægum tengipunkti milli Evrópu, Norður-Ameríku og norðurslóða. Flugvellir, hafnir, fjarskipti, ratsjárkerfin, vöktun hafsins, leit og björgun, svo eitthvað sé nefnt, skipta þar miklu máli.
Utanríkismál snúast því ekki aðeins um yfirlýsingar á alþjóðavettvangi heldur einnig um hvort Ísland hafi innviði til að sinna hlutverki sínu. Ef Ísland á að vera traustur þátttakandi í öryggissamstarfi þarf að byggja upp getu, viðbúnað og þekkingu innan lands. Þegar horft er til aukinnar umferðar á norðurslóðum, stærra leitarsvæðis og breytts öryggisumhverfis verður ljóst að sterkir innviðir á Íslandi eru hluti af varnar- og öryggismálastefnu landsins.
Leit og björgun er annað mikilvægt atriði. Ísland ber mikla ábyrgð á víðfeðmu hafsvæði. Landhelgisgæslan, þyrlusveitin, flugvellirnir og samstarf við nágrannaríki skipta sköpum þegar slys verður á sjó eða í lofti. Sá sem hér stendur hefur lagt áherslu á að Ísland þurfi að geta sinnt þessari ábyrgð með trúverðugum hætti. Á norðurslóðum geta aðstæður verið erfiðar, vegalengdir miklar og veður válynd. Þess vegna þarf að tryggja að björgunargeta, fjarskipti, viðbragðsáætlanir og mannauður sé í samræmi við þá ábyrgð sem Ísland hefur tekið að sér.
Norrænt samstarf hefur einnig stöðugt fengið aukið vægi í umræðum um utanríkismál hér á landi. Eftir að Finnland og Svíþjóð gengu í NATO eru öll Norðurlöndin komin undir sama varnarsamstarf innan Atlantshafsbandalagsins. Þetta breytir stöðunni á Norðurlöndum og skapar ný tækifæri fyrir samhæfingu, sameiginlegar æfingar, upplýsingamiðlun og aukinn viðnámsþrótt samfélaganna. Við Íslendingar getum lært margt af t.d. Norðmönnum og Finnum, ekki síst þegar kemur að samfélagslegri seiglu, almannavörnum og undirbúningi fyrir óvænt áföll. Smáríki þurfa að vera vel skipulögð því þau hafa ekki sömu burði og stærri ríki til að bregðast seint við. Það er gríðarlega mikilvægt að við Íslendingar leggjum ríka áherslu á alþjóðasamstarf við önnur lýðræðisríki sem eru ekki svo mörg í heiminum. Þau eru nefnilega ekki nema kannski 40–50, alvörulýðræðisríkin, af 200 þjóðríkjum í heiminum.
Ísland á að standa með þeim ríkjum sem virða alþjóðalög, fullveldi ríkja, mannréttindi og lýðræðisleg gildi. Stuðningur við Úkraínu fellur undir þessa sýn. Það er ekki aðeins verið að styðja eitt ríki í vörn gegn árás heldur einnig verja grundvallarreglur alþjóðakerfisins, að landamærum sé ekki breytt með valdi, að sjálfstæð ríki hafi rétt til að velja eigin framtíð og árásarstríð sé ekki liðið. Fyrir lítið ríki eins og Ísland er þetta grundvallarmál. Smáríki treysta á alþjóðalög og virkt samstarf því þau hafa ekki hernaðarlegt bolmagn til að verja hagsmuni sína ein og óstudd.
Ég hef jafnframt lagt áherslu á þekkingaruppbyggingu í öryggis- og varnarmálum hér á landi. Í því samhengi hef ég talað fyrir stofnun rannsóknaseturs öryggis- og varnarmála. Slíkt setur myndi styrkja fræðilega umræðu, auka þekkingu innan stjórnsýslu og Alþingis og tryggja að ákvarðanir séu teknar á grundvelli gagna, rannsókna og faglegs mats. Í litlu samfélagi er hætta á að sérþekking sé dreifð og veikburða. Þess vegna þarf að byggja markvisst upp þekkingu á þeim málum sem snerta þjóðaröryggi, alþjóðamál, varnir og viðbúnað.
Þessi áhersla á þekkingu tengist líka lýðræðinu. Utanríkis-, varnar- og öryggismál mega ekki verða lokaður heimur fárra sérfræðinga. Alþingi þarf að geta rætt þau af yfirvegun og almenningur þarf að skilja hvers vegna ákveðnar ákvarðanir eru teknar. Þegar heimurinn breytist hratt þarf pólitísk umræða að byggjast á staðreyndum, raunsæi og ábyrgð. Það er mikilvægt að umræðan hér í þingsal og samfélaginu öllu snúist um stöðu Íslands í breyttum heimi. Þar fara saman NATO-samstarfið, tengslin við Bandaríkin, norrænt samstarf, norðurslóðir, samstarf við Evrópusambandið, innviðir, leit og björgun, stuðningur við Úkraínu og vernd alþjóðalaga, svo eitthvað sé nefnt. Rauði þráðurinn er sá að Ísland verði að vera virkur og ábyrgur þátttakandi í alþjóðasamfélaginu. Landið er lítið en staða þess er mikilvæg. Þess vegna þarf Ísland að tala skýrt, undirbúa sig vel og standa með þeim ríkjum sem deila sömu gildum um frelsi, lýðræði, mannréttindi og öryggi.
Herra forseti. Fyrst ég sé að ég á eina mínútu þá vildi ég kannski aðeins koma inn í umræðuna sem fór fram hérna áðan. Það kom þessi umræða sem var kannski í fyrsta skipti í dag sem GIUK-hliðið var nefnt. Það eru breyttar áherslur sem við erum að sjá núna vegna þess að nú eru ákveðin Evrópuríki farin að hafa miklar áhyggjur af þessum sömu kafbátum, að þeir fari niður Suður-Atlantshafið að Evrópuríkjunum líka. Þess vegna erum við að sjá áherslur núna eins og með það að á næstu árum munu væntanlega breskar kafbátaleitarvélar og þýskar kafbátaleitarvélar stunda kafbátaleit frá Íslandi. Þar verða ný skref tekin sem snúa að þessum málum.
Ég vildi líka rétt koma að mikilvægi þess að Akureyri og norðurslóðirnar og miðstöð norðurslóða — það er á bls. 36 í skýrslunni og það er ánægjulegt að það er sérstök rammagrein um það mikilvæga starf sem þar fer fram. Þar eru tvær af stofnunum Norðurskautsráðsins, PAME og CAFF. Stofnun Vilhjálms Stefánssonar er líka þar sem og Norðurslóðanetið, svo eitthvað sé nefnt, og það er gríðarlega mikilvægt að efla það starf og þekkingarsamfélag sem þar hefur verið að byggjast upp sem snýr að þessum málum á Akureyri og var sett inn í norðurslóðastefnuna með afgerandi hætti, að mig minnir 2020 í norðurslóðastefnu sem var samþykkt þá. — Ég hef lokið máli mínu, herra forseti.