utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir ágæta ræðu. Hann beindi sjónum sínum auðvitað mest að öryggis- og varnarmálum og talaði að miklu leyti um þetta varnarsamstarf sem við erum í með Bandaríkjunum og fleiri ríkjum í gegnum Atlantshafsbandalagið, NATO. Ég vil reyndar líka óska hv. þingmanni til hamingju með það að vera kominn í Íslandsdeild NATO á nýjan leik og vonast til þess að við eigum eftir að eiga gott samstarf á þeim vettvangi.
Mér finnst þingmaðurinn tala af mikilli skynsemi þegar rætt er um varnar- og öryggismál og vera svolítið með fókusinn á réttum stað. Mér finnst þetta vera eitthvað sem við verðum að geta rætt og rætt líka bara svolítið hispurslaust og umbúðalaust að við hljótum öll að hafa svolitlar áhyggjur af því hvert Bandaríkin eru að fara, hvert Bandaríkjaforseti er að fara, hvernig Bandaríkjaforseti talar um til að mynda NATO, hvernig hann talar um einstaka NATO-ríki og bandalagið í heild sinni. Mér finnst þetta ekki breyta þeirri mynd að við erum auðvitað með gildan varnarsamning við Bandaríkin sem Bandaríkin eru í raun og veru að framfylgja fyrir hönd NATO. Við höfum alltaf getað gengið að því sem vísu að við eigum þarna mjög öflugan og góðan bandamann, bæði í viðskiptalegu tilliti en ekkert síður í öryggis- og varnarmálum.
Þess vegna langaði mig að spyrja hv. þingmann einmitt um þetta þegar forsvarsmaður stærsta ríkis Atlantshafsbandalagsins, sem hefur auðvitað verið hryggjarstykkið í Atlantshafsbandalaginu og í raun og veru á margan hátt haldið uppi vörnum beggja vegna Atlantshafsins þó að Evrópuríkin séu auðvitað að stíga meira fram með auknum framlögum til varnar- og öryggismála, hvernig hann upplifir þessa orðræðu og hvort þetta geti skaðað eða veikt NATO út á við til lengri eða skemmri tíma. Er þetta eitthvað sem við bara hreinlega bíðum af okkur (Forseti hringir.) og allt fer í sama horf og var áður?
Mér finnst þetta mjög áhugaverð spurning og nauðsynlegt að við getum rætt hana vegna þess að þetta er allt á fleygiferð eins og þingmaðurinn kom ágætlega inn á í ræðunni.