157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[20:55]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sem var góð og á málefnasviði sem ég kann mjög vel að meta og myndi gjarnan vilja að við legðum meiri áherslu á, eins og ég kom inn á í ræðu minni, þ.e. norðurslóðamálin. Hv. þingmaður orðaði það einhvern veginn með þeim hætti að það væru nokkrir hnökrar sem hefðu orðið á vinnu Norðurslóðaráðsins og ég held að það sé nú ansi fínt í það farið. Norðurslóðaráðið fór bara á ís í mjög langan tíma, það er bara þannig. Norðmenn náðu í formennsku sinni að toga eitthvað til baka og hefja einhverja vinnu í einhverjum af þessum vinnuhópum og Danir og Grænlendingar held ég að séu svo sem að reyna að fylgja í þeirra fótspor.

Hv. þingmaður sagði líka að það væri stefna okkar að það væri lítil spenna á þessu svæði og það hefur verið hjá norðurslóðaríkjunum sem við höfum unnið með. Ég þekki vel þessa stefnu, kom sjálf að því að leiða þingmannahóp um vinnu þeirrar stefnu sem fór svo í gegnum utanríkismálanefnd og þingið. Okkur er öllum ljóst að þrátt fyrir að við myndum gjarnan vilja hafa litla spennu þá er ekki lítil spenna á norðurslóðum. Það er einhver sýn sem er falleg en það er ekki raunveruleikinn og það er svolítið langt frá raunveruleikanum í dag.

Mig langar því að spyrja hv. þingmann hvernig hann sér fyrir sér að við gætum einna helst okkar öryggis- og varnarhagsmuna þegar horft er á þetta svæði, norðurslóðasvæðið. Ég átti nú í samtali áðan við samflokksþingmann hv. þingmanns, Sigmar Guðmundsson, sem var að tala aðeins um Evrópusambandið og áherslu á Evrópusambandið sem einhvers konar varnarlínu fyrir okkur Íslendinga. Er hv. þingmaður því sammála? Sér hv. þingmaður fyrir sér að Evrópusambandið verði á einhverjum tímapunkti einhvers konar varnarbandalag og varnaraðili á norðurslóðum og þá með hvaða hætti? Ég ætla að fá að bæta við spurningu því ég geri ráð fyrir að hv. þingmaður hafi hitt skemmtilegan þingmann frá Alaska á öldungadeildarþinginu, hana Lisu Murkowski sem er örugglega einn fróðasti bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn um norðurslóðamál. Þrátt fyrir að vera repúblikani hefur hún mótmælt mjög þessari orðræðu sem forseti þeirra hefur viðhaft. Hvernig var umræðan (Forseti hringir.) um öryggis- og varnarmál á þessum vettvangi og sjá Bandaríkin sig ekki fyrir sér sem þátttakendur í því að tryggja öryggi og varnir á norðurslóðum?