utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur kærlega fyrir fyrirspurnirnar. Ég er almennt mjög kurteis maður þannig að ég kannski notaði það orðalag að það væru einhverjir hnökrar í samstarfinu, kannski of vægt til orða tekið, en með því átti ég að sjálfsögðu við að það er staðreynd að Rússlandi var í rauninni vísað út. En það er óformlegt samstarf innan Norðurskautsráðsins sem enn er virkt með svipuðum hætti og hv. þingmaður nefndi hér áðan þar sem formennskuríki fer í rauninni með þessi samskipti við Rússland, enda gríðarlega mikilvægt að við séum enn í góðum samskiptum, sérstaklega þegar kemur að vísindum og rannsóknum á þessu svæði. Það þekkjum við m.a. vegna umræðu um fiskstofna og ýmislegt sem er á þessu svæði sem er okkur öllum mjög mikilvægt.
Og af því að hér var líka vitnað í ferð okkar þingmanna, og ég kom reyndar inn á það sjálfur áðan, til Alaska þá fengum við tækifæri til þess einmitt að eiga samtal við aðra þingmenn á þessu svæði og þar tala allir einum rómi um það hve þetta samstarf er enn gríðarlega mikilvægt þrátt fyrir að Rússland sé farið út. Kurteisi mín um hnökrana var kannski beinlínis meint þannig að við erum áfram í samstarfi og við erum að vinna og erum að reyna að tryggja að þessu mjög mikilvæga samstarfi verði haldið áfram.
Spennan er vissulega mikil á svæðinu og okkar varnir hafa verið í gegnum NATO, Atlantshafsbandalagið, eins og ég kom inn á í minni ræðu, sem er alveg gríðarlega mikilvægt. Hér hefur verið komið inn á það í dag líka að það eru Evrópuþjóðir innan NATO sem er okkur gríðarlega dýrmætt og mjög mikilvægt. Ef ég á að fara að spá hvað verður í framtíðinni með okkar öryggismál þá fylgja því ákveðnar ógnir þegar forseti Bandaríkjanna talar með þessum hætti. Ég get komið að því í seinna andsvari mínu varðandi samskipti mín við Lisu Murkowski en það breytir því ekki að það er líka mikil spenna innan Bandaríkjanna vegna þessarar afstöðu Bandaríkjaforseta.