157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[21:01]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Það sem ég er að reyna að draga fram og benda á er að það er eitt að tala um Evrópusambandið — einhverjir vilja fara inn í það og ég held að það sé fyrst og fremst út frá einhverjum efnahagslegum hugmyndum um að lífið væri betra á Íslandi ef við værum í Evrópusambandinu, sem ég er algjörlega ósammála en fólk má hafa aðra skoðun — en það er annað þegar kemur að þessu svæði og velta því upp að Evrópusambandið geti með einhverjum hætti staðið þar vaktina. Jú, Finnland er í Evrópusambandinu og Finnland er að sjálfsögðu norðurslóðaríki, það er Svíþjóð líka, en Noregur er það ekki. Ísland er það ekki, Grænland er það ekki, þó að konungsríkið Danmörk sé þar, og alls ekki Kanada eða Ameríka og þaðan af síður Rússland, sem er helmingurinn af norðurslóðum. Og það sem ég er einmitt að benda á í þessum gríðarlega mikilvægu hagsmunamálum Íslendinga sem norðurslóðamál eru er að svarið getur ekki verið Evrópusambandið. Það bara getur það ekki. Þess vegna er svo mikilvægt að rækta samstarfið við þessar nágrannaþjóðir okkar á norðurslóðum sem hafa getu, kunnáttu, þekkingu og vilja til að standa með okkur í þeirri vinnu.

Hv. þingmaður kom líka aðeins inn á Akureyri, sem ég ber mikla virðingu fyrir og ég held að það hafi verið mjög gott hvernig við gátum skrifað Akureyri inn í þessa norðurslóðastefnu okkar. Ég sá alltaf fyrir mér að við myndum tala um Akureyri sem norðurslóðahöfuðborg, að norðurslóðaborgin okkar á Íslandi væri Akureyri og þar er fullt af tækifærum, miklu frekar en í þessu svæðisborgarmáli sem kom inn í einhverri allt annarri umræðu. En þarna liggja raunveruleg tækifæri þar sem við getum lagt eitthvað af mörkum. Þegar farið er í þessa norðurslóðaumræðu varðandi vísindin og alla þessa vinnuhópa sem Norðurslóðaráðið snýst um þá eru það ekki bara Norðurlöndin og einhver lönd sem eru tengd Evrópusambandinu sem eru að setja fjármuni, kunnáttu, getu og þekkingu inn í það. Það eru fyrst og fremst. Bandaríkin. Það var Rússland líka. Þannig að þetta skiptir okkur mjög miklu máli og ég er kannski bara að ýta enn frekar á hv. þingmann að bregðast við því hvort hann telji ekki, þrátt fyrir stöðuna sem er í Bandaríkjunum í dag með núverandi forseta, mikilvægt að við ræktum þessi samskipti við Bandaríkin og við Kanada út frá öryggi og vörnum og hagsmunum okkar á norðurslóðum.