utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Ég hef ekki tekið þátt í neinni sérstakri umræðu um þessa alþjóðabjörgunarmiðstöð á þeim vettvangi síðan ég kom hingað inn á Alþingi. Varðandi hugmyndirnar um Langanes aftur á móti þá þurfum við að horfa á þetta, eins og ég nefndi í ræðu minni, út frá þeirri siglingaleið sem nú er að opnast yfir norðurskautið. Við þekkjum það nú aldeilis fyrir norðan, það var mjög umdeilt á sínum tíma þegar við tókum á móti einu skipi sem kom þar yfir. En Finnafjörður er auðvitað hugsaður sem svona höfn og ekki síst fyrir millilandasiglingar. Hvort það sé skynsamlegt að vera með björgunarmiðstöðina á sama stað og þessa alþjóðlegu höfn er eitthvað sem verður bara að fara yfir. En við erum mjög heppin að við erum með fast varðskip núna sem er á Siglufirði sem er gríðarlega mikilvægt fyrir svæðið. Aðalatriðið er að björgunarmiðstöðin sé fyrir norðan land. Það er mjög auðvelt að koma henni fyrir í Eyjafirði en við þurfum bara að fara yfir það hvað er hagkvæmast fyrir svæðið í heild sinni en ég held að það sé varhugavert að blanda saman stórskipahöfn og björgunarmiðstöð.