utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni, þingflokksformanni Viðreisnar, fyrir ræðuna. Hv. þingmaður kom stuttlega inn á undir lok ræðunnar atriði er varða þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið um aðlögun eða aðild eftir því hvernig á það er litið. Hv. þingmaður kom inn á þetta í andsvörum í dag og hann hefur kannski að einhverju marki borið töluverðan þunga af því að útskýra sjónarmið Viðreisnar og ríkisstjórnarinnar um að það skuli tryggja að almenningur fái að sjá hvað standi til boða í þessum samtölum. Mig langar til að spyrja hv. þingmann, verandi jafn vel inni í sjónarmiðum stjórnarinnar og raunin er: Getur komið upp sú staða, verði niðurstaðan já núna í ágúst, að landsmenn fái ekki að taka afstöðu til samnings við Evrópusambandið í svokallaðri annarri þjóðaratkvæðagreiðslu? Getur sú staða komið upp að mati hv. þingmanns?