157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[21:46]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Það var stórmerkilegt. Nú liggur fyrir að verði niðurstaða samtala við Evrópusambandið á þann veg sem efasemdarmenn um þennan leiðangur telja að raunin verði þá fá landsmenn ekki að kíkja í pakkann, þá fá landsmenn ekki að sjá hvað stendur til boða. Það er bara ef niðurstaðan verður á þann veg sem hv. þingmenn Viðreisnar, Samfylkingar og eftir atvikum Flokks fólksins telja að landsmenn fái seinni atkvæðagreiðsluna. Þetta er stórmerkileg staða þannig að þetta snýst á endanum ekki um að kíkja í pakkann. Þetta snýst ekki um að sjá hvað er í boði. Þetta snýst um að vona það og liggja á bæn að niðurstaðan og vinnan verði á þeim forsendum sem Samfylking og Viðreisn leggja upp með, ekki eins og allt er liggur fyrir í málinu bendir til að raunin verði.

Því spyr ég núna í seinni spurningu minni: Verði niðurstaðan sú í þessum samtölum að mat efasemdamanna hér í þinginu, sem eru í stjórnarandstöðunni, þingmenn Miðflokks, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks upp til hópa — verði niðurstaðan á þann veg sem þingmenn þessara flokka telja raunina verða, fá þá landsmenn ekki að kjósa um samning um aðild að Evrópusambandinu?