utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegi forseti. Ég ætlaði að nota þessa ræðu til að ræða annað en það sem öll orkan hefur farið í. En það er auðvitað það sem gerist þegar ríkisstjórnin fer í þessa ESB-vegferð, eðlilega hlýtur það að yfirskyggja öll þessi mikilvægu mál sem við ættum að ræða. Ég verð þó að segja að ég er á svipuðum slóðum og hv. þm. Bergþór Ólason, maður áttar sig ekki á því hvert nákvæmlega ESB-sinnar eru að fara. Mér finnst það ekki hljóma neitt ofsalega vel þegar það er sagt, eins og hv. þm. Sigmar Guðmundsson lagði upp með, að við vorum svo veik síðast þegar við sóttum um að góða Evrópusambandið var ekkert gott þá við okkur, það var bara vont við okkur. En núna eigum við svo mikið af peningum og stöndum svo sterkt og þá mun Evrópusambandið verða gott og finna einhverjar leiðir, sem að vísu hafa ekki verið fundnar áður, og þá verður allt svo svakalega fínt.
Virðulegur forseti. Mér finnst þessi nálgun ekki mæla með aðild að Evrópusambandinu. En ég hefði viljað að við værum að ræða hér meira varnarmálin, það er full ástæða til. Það hefur lítið, held ég, eða bara ekkert verið minnst á JEF t.d., lítið rætt um norðurslóðamálin, viðskiptamálin. Hér voru nefndar fjölþáttaógnir og að það væri svo mikilvægt að ganga í Evrópusambandið út af þeim. Ég hóf nú samstarf við og við urðum aðilar að fjölþáttaógnasetrinu í Helsinki sem er undir Evrópusambandinu og við þurftum ekki að ganga í Evrópusambandið til þess. Við höfum auðvitað marga sameiginlega hagsmuni með Evrópusambandinu og eigum að eiga við það gott samstarf.
Það sem er að gerast núna, virðulegi forseti, er að ríkisstjórnin ætlaði sér augljóslega að fara þá leið að hafa eins litla umræðu um þetta eins og mögulegt er, hafa þetta á þeim tíma þegar erfiðast er að taka umræðu af þeim einföldu ástæðum að það er engin hefð fyrir því á Íslandi að hafa mjög mikið af pólitískum fundum eða umræðu í júní, júlí og ágúst. Það er engin hefð fyrir því. Þetta er kynnt með þeim hætti að við ætlum ekkert að ræða Evrópusambandið eins og hæstv. forsætisráðherra sagði á blaðamannafundinum. Það ætti ekkert að ræða það heldur ætti að svala einhverri forvitni. Ef einhver vill svala forvitni þá fer hann bara og kynnir sér málin, sem er mjög gott og mjög mikilvægt. En ef menn ætluðu í alvöru að reyna að gefa þjóðinni eins góðar upplýsingar og mögulegt er og taka eins málefnalega umræðu og æskilegt er að gera í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu þá hefðu menn átt að setja gögnin á borðið, koma með úttektir og skýrslur á því sem gerðist, af því að það á að byggja þetta á einhverju sem menn töldu nú, held ég allir, að væri búið en það er búið að draga það upp aftur. Þá er ég að vísa í aðildarumsókn Jóhönnustjórnarinnar. Ég bið bara hæstv. ríkisstjórn og hv. þingmenn í áhrifastöðum, úr því að við erum komin á þennan stað, að veita upplýsingar, veita aðgang að gögnum.
Ég ætla ekkert að hafa stór orð um það hér, virðulegi forseti, en það er til lítils og það er innantómt að vera hér í ræðustól og segja: Við þurfum að taka á upplýsingaóreiðunni í heiminum og það verður að virða þau gildi sem okkur finnst vera svo sjálfsögð, við viljum lýðræði og málefnalega umræðu, en við ætlum ekki að sýna neitt á þau gögn sem við ætlum að byggja aðildarumsókn á. Það er holur hljómur í því. Ég vara við því, virðulegi forseti, að menn stundi þessi vinnubrögð. Ég er sérstaklega að vísa til hv. utanríkismálanefndar. Þar hafa legið fyrir fyrirspurnir mjög lengi. Við höfum fengið eitt svar frá einu ráðuneyti sem var útúrsnúningur. Það liggur alveg fyrir. Auðvitað getum við haldið áfram að garfa í þessu en að sumu höfum við ekki aðgang. Þessi gögn eru öll til, það er búið að biðja um þau. Það á að koma með þau hratt og vel án þess að vera að eyða einhverjum tíma í að tefja það ferli. Ef menn meina það sem þeir segja þá verður hæstv. ríkisstjórn og hv. stjórnarþingmenn að gera það.