157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[22:19]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir andsvarið. Það er hárrétt athugasemd hjá honum að auðvitað átta ég mig á að 1,5% af vergri landsframleiðslu er auðvitað talsvert stærri biti heldur en ein þjóðaratkvæðagreiðsla, ég að sjálfsögðu átta mig á því. Mér finnst samt ekki alveg sanngjarnt að segja og það er kannski ekki alveg það sem ég er að meina þegar ég segi að orka og fókus og athygli og að kljúfa þjóðina í herðar niður séu ekki einhvers konar verðmæti í sjálfu sér. Það er mín skoðun að það væri farsælla og skynsamlegra að styrkja stoðirnar í þeim nýja raunveruleika sem ég hef fjallað um, þar sem við erum í nýrri stöðu með okkar öryggis- og varnarmál og þurfum að gera meira innan NATO heldur en áður o.s.frv., í staðinn fyrir að bæta ESB-vegferðinni við. Það er bara mín skoðun. Krónur og aurar voru bara einn þáttur af mörgum í því.

Varðandi bandalögin sem hv. þingmaður spyr mig út í þá skal ég ekki fullyrða en ég held samt að ég hafi ekki notað það orð heldur orðið samstarf. Samstarf er af hinu góða. Norðurlandaþjóðirnar hafa í áratugi notið góðs af því að vinna saman og það alþjóðastarf sem við tökum þátt í er svona samstarf í grúppum líkt þenkjandi þjóða, samstarf þar sem er einhvers konar jafnréttisgrundvöllur. Tvíhliða samstarf og samningur eins og við höfum við Bandaríkin og höfum haft núna í 75 ár eru eitthvað sem mér hugnast vel. Ef hv. þingmaður vill endilega tala um bandalög eru bandalög góð ef báðum hugnast það bandalag. Eins og ég segi myndi ég nú halda að samstarf og samningar séu betri en t.d. bandalag eins og Evrópusambandið býður upp á bara vegna þess valdaframsals sem það myndi ósjálfrátt hafa í för með sér fyrir íslenskt samfélag.