157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[22:24]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Ætli þessi umræða kristalli ekki ágætlega mismunandi sjónarhorn. Ég hef heyrt í þessari umræðu talsvert lengi talað um að við værum á einhvern hátt öruggari ef við værum í ríkjabandalagi Evrópusambandsins. Ég hef ekki heyrt fullyrt að hvaða leyti kannski en ég get alveg skilið að það hljómi sennilega í eyru einhverra að á einhvern hátt væri hægt að færa rök fyrir því að við værum öruggari. Að mínu viti hefur Evrópusambandið reyndar hingað til ekkert endilega sýnt fram á það. Ég veit að Danmörk og Grænland er dæmi sem er mikið notað núna og ég ætla ekki að gera lítið úr því. En ég var líka með sperrt eyrun í Covid þar sem ég upplifði ekki mikið öryggi af hálfu Evrópusambandsins gagnvart sínum ríkjum. Og talandi um sjónarhorn þá er þetta líka spurning um jafnvægi: Hverju er ásættanlegt að fórna til að viðhalda ásættanlegu óöryggi? Það er vissulega hægt að vefja einhvern marglaga inn í bómull og fara svo marga hringi með límbandi utan um þá bómull og stinga svo viðkomandi inn í kústaskáp, læsa hurðinni og þar dúsir hann. Viðkomandi mun eflaust ekkert fara sér að voða, hann mun ólíklega verða fyrir bíl en það verður eflaust helst til leiðinlegt inni í þessum skáp þó að það mætti alveg færa rök fyrir því að þar sé hann öruggari. Ég held að okkar verkefni verði að vera að horfa á þetta heildarsamhengi hlutanna. Við erum með stórkostlega varnarsamninga, við erum ofboðslega heppin hvað það varðar og ég myndi telja farsælla að við byrjum á að tryggja það samstarf. Þetta er svona eins og með börnin í flugvélinni, byrja á að tryggja sjálfan sig áður en maður hjálpar barninu, áður en við förum að skoða einhver frekari skref í því sem enginn hefur, alla vega enn sem komið er, komið með óyggjandi sönnur á að verði til aukins öryggis.