utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka þingheimi fyrir prýðisgóða umræður um skýrslu utanríkisráðherra þó að eðli málsins samkvæmt og í ljósi þess sem er að gerast í heiminum í dag sé afar eðlilegt að umræðan fari víða og það sé einblínt líka á helstu málefni dagsins, hvort sem það eru varnar- og öryggismál akkúrat núna eða ekki síður þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst.
Mig langar að reyna að fara yfir nokkur atriði sem ég punktaði niður hjá mér og vil hnykkja á í ljósi þeirra ræðna sem hafa verið haldnar hér í dag. Ég vil byrja á því að nefna Norðurlandasamstarfið. Ég vil þakka fyrir það hversu hugleikið það er fólki hér. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að efla það og styrkja og ég hef fundið það í störfum mínum sem utanríkisráðherra og í samskiptum við utanríkis- og varnarmálaráðherra að samvinnan hefur dýpkað og orðið betri og meiri enda brýn þörf á. Helsingforssamningurinn er rammasamningur sem myndar, eins og við þekkjum, umgjörð um norrænt samstarf og ef það á að breyta honum þarf samþykki allra landanna. Það hefur verið ákall frá norræna þingmannasamstarfinu í Norðurlandaráði um að uppfæra samninginn til að bregðast við breyttum aðstæðum og það eru, skilst mér, rúm 30 ár síðan samningnum var síðast breytt. Það var í október 2024 sem Norðurlandaráð samþykkti tilmæli til norrænu ríkisstjórnanna og það er verið að vinna að þeim, m.a. hafa norrænu ríkisstjórnirnar samþykkt að setja á stofn nefnd til að vinna tillögu að breytingum á samningnum sem tryggi ákveðið jafnræði með aðild Færeyja, Grænlands og Álandseyja. Mér skilst einnig að það verði fundur núna á miðvikudaginn þar sem einmitt verði farið yfir þetta. En starfið innan Íslandsdeildar Norðurlandaráðs á umliðnum árum hefur verið gríðarlega gott, ekki síst þegar Ísland var í forsæti í Norðurlandaráði 2024. Við höfum verið að styðja þetta þegar þessi mál hafa komið inn.
Mig langar að geta þess, af því að Norðurlöndin og varnarmálin hafa verið tengd hér saman, að við erum í þéttu samráði innan Norðurlandaríkjanna um drónavarnir og -eftirlit, Eystrasaltsríkin að einhverju leyti líka. Við erum að skoða þetta náið með okkar helstu grannríkjum sem eru að byggja upp mikla getu á þessu sviði, til að mynda Danir, í samvinnu við Úkraínu. Við munum bæði styðja við og taka virkan þátt í að byggja upp þessa getu.
Það hafa líka verið stór skref stigin í samstarfi Norðurlandanna innan NATO og við erum núna öll undir Norfolk. Það hefur verið unnið að sameiginlegum áætlunum og Finnar og Svíar hafa komið hingað í loftrýmisgæslu og það er búið að gera tvíhliða samninga eins og við þekkjum, til að mynda við Finna. Öryggislegt og pólitískt vægi norðurslóða er auðvitað samofið öryggishagsmunum okkar, Norður-Ameríku og Evrópu. Við þurfum ekki annað en að hugsa til siglingaleiða og varna og þess vegna er gott að sjá að bæði Kanada og Evrópuríkin eru að leggja meiri áherslu á norðurslóðir. Við erum að fá og sjá mun meira eftirlit á okkar nærsvæði í gegnum GIUK, alla vega meiri upplýsingar en hafa verið gefnar upp alla jafna fram til þessa. Þannig að norrænt varnarsamstarf hefur stóraukist, bæði pólitískt og það skiptir mjög miklu máli en líka hernaðarlega og við höfum lagt ríka áherslu á þetta starf. Það treystir að mínu mati samstarfið og öryggi Norðurlandanna og okkar allra sem NATO-ríkja að við erum núna öll innan NATO og öll undir sömu herstjórn. Það er gott. Norðurlöndin og líka Noregur og við öll höfum horft til þess að vinna að því að Evrópa og Evrópusambandið taki að sér aukið hlutverk í öryggis- og varnarmálum, ekki í stað NATO, en það hlutverk er að aukast. Ég hef heyrt ávæning af því — það er pínulítið til staðar þessi tilhneiging hjá þeim sem eru bara að andskotast út í Evrópusambandið að tala allt niður sem er gert á því sviði. Þurfti Evrópa að rísa upp? Já, hún þurfti að gera það. Er hún að gera það? Já, hún er að gera það. Evrópa og Evrópusambandið, líka Noregur og Bretland í samstarfi við Evrópusambandið, eru að taka að sér þetta aukna hlutverk í öryggis- og varnarmálum og treysta samstarfið við NATO, bæta sameiginlegt öryggi með aðgerðum gegn fjölþáttaógnum og ýta undir uppbyggingu, getu og iðnaði á þessu sviði. Evrópa verður svolítið að gera það. Ég vil minna á það í ljósi þess sem m.a. hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson hefur verið að benda á, að það var tilkynnt í janúar 2026 af hálfu Bandaríkjanna að þeir myndu draga sig til baka frá ýmsum alþjóðastofnunum eins og við þekkjum, þetta er eitthvað sem við vitum af, og líka rannsóknarsetrum og þar með talið Evrópska öndvegissetrinu, sem er gríðarlega mikilvægt, sem berst gegn fjölþáttaógnum. Þar er að byggjast upp mjög mikil þekking og það hlutverk er núna enn meira á ábyrgð og á forsendum Evrópu. Það er því margt hægt að nefna þar sem Evrópusambandið er að taka meira til sín.
Við erum að átta okkur á því að efnahagslegt öryggi er núna orðið samtengt vörnum. Það er verið að beita viðskiptum og tollum markvisst, verið að vopnavæða eins og við höfum sagt, og við erum að sjá Evrópu standa meira saman. Það er verið að byggja upp sjóð í Evrópu sem hefur verið nefndur SAFE, 800 milljarða sjóð til næstu níu ára til að byggja upp þennan þátt. Ég vil líka geta þess að Frakkar, Bretar og Þjóðverjar horfa líka til varna á þessu svæði hér í Norður-Atlantshafinu og það er mikilvægt, enda hefur þróunin líka bein áhrif á þessi ríki, ekki síst að þeirra mati.
Um leið og við erum í auknu samtali og samstarfi við aðrar vinaþjóðir og Evrópusambandið þá eigum við líka virkt samtal við vesturhlutann; við Bandaríkin, við Kanada og ekki síst samstarf milli norðurskautsríkja fyrir utan Rússland. Það er mjög mikið í gangi og við höfum beitt okkur fyrir virkri umræðu og uppbyggingu á eftirliti og varnargetu á norðurslóðum og það höfum við gert í samstarfi norðurskautsríkjanna í bandalaginu og líka innan JEF.
Mig langar sérstaklega að undirstrika hversu mikilvæg Bandaríkin eru okkur. Þau eru algjört lykilríki, samstarfsríki okkar Íslendinga á sviði öryggis- og varnarmála og við höfum markvisst verið að hlúa að góðum tvíhliða samskiptum milli Bandaríkjanna og Íslands. Við höfum sinnt öflugri hagsmunagæslu, m.a. af hálfu sendiráðsins, en ég hef líka farið vestur og átt samtöl við ráðherra þar en líka við þingmenn og senatora. Það er ekki langt síðan ég átti gott samtal við Christopher Landau sem hefur verið að sækja utanríkisráðherrafundi NATO. Við ræddum pólitísk samskipti ríkjanna, gjöfult varnarsamstarf og viðskiptamál, allt gríðarlega mikilvægt fyrir okkur og við höldum áfram að treysta og hlúa að tvíhliða samskiptum milli ríkjanna. Auðvitað gegnir sendiráð okkar í Washington þarna algeru lykilhlutverki. Við höfum líka lagt áherslu á að vinna þéttar með Kanada í öryggis- og varnarmálum, í hagnýtum eftirlits- og varnarviðbúnaði á norðurslóðum og Norður-Atlantshafi og vinnum núna, eins og ég hef getið um hér áður í dag, að því að uppfæra samninga um þessi efni við Kanada.
Ég undirstrika að þetta er ekki annaðhvort eða. Það að vera í öflugu og nánu samstarfi við Evrópusambandið og jafnvel í Evrópusambandinu útilokar ekki markvisst og mjög náið samstarf við Bandaríkin enda sjáum við að þrátt fyrir allt og allt hafa einir dyggustu bandamenn Bandaríkjanna verið í Evrópu og þó að þar séu áskoranir í því sambandi þá verðum við að halda áfram að treysta sambandið þvert yfir Atlantsála. En auðvitað þurfum við líka að efla samstöðu um að efla Evrópustoðina í NATO og við viljum draga fram að okkar varnarhagsmunir einskorðast ekki bara við hernaðarlega getu heldur líka við áfallaþol, netöryggi, efnahagslegt öryggi og fleira.
Stutt í lokin, það er gríðarlega mikilvægt, virðulegi forseti, hvað utanríkisþjónustuna varðar að einmitt á svona umrótatímum eins og eru núna þurfum við meiri samskipti við ríki, ekki minni. Við þurfum meira samstarf og samtal við önnur ríki. Það skiptir sérstaklega miklu máli fyrir lítið ríki eins og Ísland. Þess vegna var m.a. löngu tímabært að opna sendiráð á Spáni, bæði út frá NATO en ekki síður til að treysta og efla öryggi og þjónustu við Íslendinga sem þar eru staðsettir. Eins og ég segi, þá eru áskoranir víða í utanríkisþjónustunni. Við tökum þær áskoranir alvarlega og þess vegna erum við að halda áfram að efla og byggja upp þjónustuna okkar hér heima en líka á sendiskrifstofum okkar og síðan með þessu risaverkefni sem er fram undan sem er að efla, styrkja og treysta stoðir NATO, vera verðugur bandamaður en um leið að taka hugrökk skref í átt að aukinni og dýpri Evrópusamvinnu og treysta þjóðinni fyrir því dýrmæta skrefi.