Störf þingsins.
Frú forseti. Lengi hefur ástandið með samgöngur við Vestmannaeyjar verið erfitt en nú er það orðið algerlega óboðlegt, frú forseti. Þetta er versti vetur og langversta vor hvað samgöngutruflanir við Eyjar varðar. Ég hef nokkrum sinnum í vetur bent á að ráðast þurfi í aðgerðir til að koma samgöngum við Eyjarnar í betra horf; fá öflugra sanddæluskip, hafa til taks varaferju fyrir Herjólf og stórauka flug til Eyja þegar rof verður á samgöngum. Í stuttu máli, frú forseti, þá hefur ekkert bólað á neinum aðgerðum og sannast hið fornkveðna: Þegar ekkert er gert þá gerist ekki neitt. Þá kastaði fyrst tólfunum í gærkvöldi þegar farþegaferjan Herjólfur lagði af stað um klukkan hálfátta í gærkvöldi frá Þorlákshöfn og kom til hafnar í Vestmannaeyjum klukkan hálfþrjú í nótt. Eftir nær sjö klukkustunda ferðalag lagðist ferjan að höfn þar sem um borð voru m.a. íþróttakrakkar sem voru í ferðalagi til að etja kappi við jafnaldra sína uppi á landi. Er þetta boðlegt, frú forseti? Ferjan gengur nú á annarri skrúfunni og í raun getur sigling í vondum veðrum verið mjög varasöm ef eitthvað fer úrskeiðis. Útlitið er heldur ekki gott. Veðurspá og sjólag eru óhagstæð fyrir siglingar og þó fremur til dýpkunar. Lundahlaupið, „Puffin Run“, frú forseti, sem ráðgert er næstu helgi verður líklega mun fámennara heldur en útlit var fyrir. Atvinnulíf, og þó aðallega það sem tengist ferðaþjónustu, er í uppnámi vegna rofs á samgöngum og gífurlegur skaði hefur orðið.
Frú forseti. Nú hafa ýmsir tekið til máls um þennan vanda og er gott að athygli sé vakin á samgönguvanda Eyjanna. Ýmsir hafa átt í samráði við stjórnarliða og jafnvel ráðherra og allir lýsa áhyggjum. En það er ekki nóg. Aðgerða er þörf. Eflaust vona menn að vandamálið gleymist þegar höfnin opnar loksins (Forseti hringir.) og skrúfa Herjólfs verður komin í lag en aðgerða er þörf til að leikurinn endurtaki sig ekki næsta vetur. (Forseti hringir.) Hvar eru sleggjurnar, frú forseti? Hvert fóru allir skattarnir (Forseti hringir.) sem voru hækkaðir svo unnt væri að fara í að efla samgöngur? (Forseti hringir.) Hvar eru vélarnar sem átti að ræsa, frú forseti? (Forseti hringir.) Hvert fóru verðmætin sem mokað var inn á verðmætasköpunarhaustinu, frú forseti? (Forseti hringir.) Nei, koma þarf samgöngum við Vestmannaeyjar í lag, bæði til skamms tíma og langs tíma.
(Forseti (ÞSv): Forseti ítrekar að ræðutími í störfum þingsins er tvær mínútur.)