157. löggjafarþing — 101. fundur,  28. apr. 2026.

Störf þingsins.

[13:43]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Fyrir jól voru samþykkt lög á Alþingi um upptöku kílómetragjalds til að styrkja tekjustrauma til vegakerfisins svo einhver sómi sé að og til þess að vinna á innviðaskuldinni. Hv. efnahags- og viðskiptanefnd hefur lagt sig í líma við að fylgjast vel með innleiðingunni og opnaði frumkvæðismál í febrúar til þess að fylgjast með málum. Til okkar fengum við á fund aðila frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Ísland.is og Skattinum þar sem kom fram að engin stórvægileg vandamál hefðu komið upp og þau minni háttar atriði sem hafa komið fram hafi verið leyst jafnóðum. Flestum hefur gengið vel að skrá ökutækin sín og upplifa ferlið sem einfalt. En þar er ekki öll sagan sögð. Landinn hefur verið duglegur að deila upplifun sinni af þessari kerfisbreytingu og á síðunni Kílómetragjaldið á samfélagsmiðlum má finna 12.400 meðlimi sem hafa skiptar skoðanir á því hvernig gengur. Við fáum margar fréttir af því að margir séu ósáttir við furðureikninga sem standist ekki raunakstur. Við bætist að hafin er undirskriftasöfnun þar sem yfir 41.000 manns hafa skrifað undir til þess að mótmæla kílómetragjaldinu.

Til að bregðast við þessu hefur hv. efnahags- og viðskiptanefnd sent spurningar til Skattsins til að fá betri upplýsingar um hvernig þessi innleiðing hefur gengið. Okkur er í mun að þetta gangi vel og við fáum betri yfirsýn yfir hvernig til hefur tekist. Þessar spurningar hafa verið sendar, voru sendar í síðustu viku, og lúta að því að reyna að fá betri upplýsingar. Hvernig hefur gengið? Hvað er að bregðast? Hvers vegna er fólk að fá þessa furðureikninga? Ég vil bara segja við þingheim að hv. nefnd leggur sig í líma við að láta þetta ganga vel, fylgjast vel með og sinna sínu eftirlitshlutverki og ég mun deila með ykkur svörunum hér þegar þau koma fram í nefndinni og ég vil þakka nefndinni fyrir það að við erum bara svolítið saman í því að fylgja þessu eftir.

Ég vil líka segja það að þegar við erum að fara í svona stóra kerfisbreytingu er mikilvægt að vera dálítið auðmjúkur gagnvart því að það koma upp atriði og við þeim þarf að bregðast og það þarf að greiða úr þeim vanda sem upp hefur komið. (Forseti hringir.) En ég vil bara segja við þingheim: Við munum fylgjast með og bregðast við ef upp koma upp vandamál sem þarf að leysa.