157. löggjafarþing — 101. fundur,  28. apr. 2026.

Störf þingsins.

[13:54]
Horfa

Sandra Sigurðardóttir (V):

Virðulegur forseti. Að halda því fram beint eða óbeint að aukið jafnrétti sé stóra vandamálið í lífi ungra kvenna er ekki bara einföldun heldur rangfærsla og í raun mjög hættulegt. Það dregur athyglina frá raunverulegu vandamáli sem þessi hópur stendur frammi fyrir. Sem betur fer höfum við náð árangri í jafnréttismálum og það gerist ekki af sjálfu sér. Markvissar aðgerðir stjórnvalda og áratugavinna hefur gert það að verkum að við erum á þeim stað í dag en þrátt fyrir það á jafnréttið undir högg að sækja.

Forseti. Allt tal um að ungum konum í dag líði verr vegna þess að þær hafi fleiri tækifæri er algerlega galið. Samfélag okkar hefur breyst á leifturhraða. Konur eru að mennta sig og eru í mörgum helstu leiðtogahlutverkum landsins. Þar viljum við einmitt hafa jafnræðið en til þess þurfa kerfin okkar líka að fylgja með. Þegar talað er um að snúa aftur að einfaldari gildum eða tilgangi er verið að hverfa aftur til fortíðar en það leysir ekkert. Raunveruleikinn er sá að slíkar hugmyndir enda oftar en ekki á því að færa ábyrgðina aftur inn á heimilin og þá fyrst og fremst á konur.

Forseti. Við sjáum þetta skýrt í umræðunni um fyrstu ár barnsins. Þegar bil er á milli fæðingarorlofs og leikskóla er það ekki val, það er kerfisbrestur. Þegar lausnin felst í því að foreldrar, yfirleitt mæður, stígi út af vinnumarkaði lengur er verið að festa misrétti í sessi. Það þýðir minni tekjur, verri stöðu á vinnumarkaði og lakari lífeyrisréttindi fyrir konur. Það er ekkert valfrelsi, það er fórn sem er falin á bak við falleg orð.

Forseti. Vandinn er ekki jafnrétti. Vandinn er að við höfum ekki fylgt jöfnum rétti eftir með raunverulegum lausnum og raunverulegu valfrelsi.