157. löggjafarþing — 101. fundur,  28. apr. 2026.

Störf þingsins.

[14:01]
Horfa

Árni Helgason (S):

Frú forseti. Ég tók sæti hér á þingi í gær og vil byrja á að segja að það er mikill heiður og ég hlakka til samstarfs við þingmenn og starfsfólk þingsins. Í mínum huga er brýnasta verkefni okkar sem störfum á sviði stjórnmálanna í dag sú erfiða og alvarlega staða sem blasir við í efnahagsmálum.

Þegar ríkisstjórnin tók við fyrir einu og hálfu ári var almenningi lofað því að hlutirnir myndu breytast og betri tíð væri fram undan. En árangurinn lætur á sér standa. Það væri kannski eitt ef tilfinningin væri sú að stjórnin væri sem einn maður að vinna í málinu en sú tilfinning er ekki fyrir hendi. Á meðan heimili landsins bíða eftir vaxtalækkun sem aldrei kemur virðist stjórnin vera upptekin við allt önnur mál, flokkspólitísk mál. Þannig var sett á oddinn í vetur í störfum þingsins að klára bótafrumvarpið svokallaða sem Flokkur fólksins hefur gert kröfu um, vísitölutrygging bóta sem sérfræðingar um efnahagsmál og aðilar á vinnumarkaði vöruðu mjög við sem miklum óleik í baráttunni við verðbólguna. En málið varð að klárast sama hvað. Svo núna í álíka miklum spreng er það margra ára gamalt pólitískt baráttumál Viðreisnar um að endurvekja aðildarviðræður við Evrópusambandið sem enginn var að kalla eftir nema Viðreisn. Forystumenn flokksins tala um lýðræðisveislu sem er þó sérstök að því leyti að hún virðist felast í því að þeir 16% kjósenda sem kusu Viðreisn virðast einhvern veginn vega töluvert meira og þyngra en þau u.þ.sb. 60% atkvæða sem kusu flokka sem eru beinlínis á móti ESB-aðild. Samfylkingin talaði í aðdraganda kosninga um að ESB-leiðangur kæmi aðeins til greina ef víðtækur stuðningur væri í þjóðfélaginu og á vinnumarkaði. Hvorugt er til staðar en flokkurinn kannast engu að síður ekki við það.

Á meðan þessar æfingar taka tíma og athygli stjórnarinnar verður staðan í efnahagsmálum stöðugt snúnari. Verðbólgan er hærri nú en þegar stjórnin tók við. Stýrivextir hafa hækkað á ný, atvinnuleysi hefur aukist og væntingar eru dökkar. Eina viðleitnin sem ríkisstjórnin hefur sýnt er þunnt tveggja punkta plan; fjölgun hraðhleðslustöðva, sem markaði vissulega ákveðna nýjung í að takast á við efnahagsvanda, og svo tímabundin lækkun á virðisaukaskatti eldsneytis, tillaga sem fjármálaráðherra hafði sjálfur gert lítið úr og kallað vitleysu stuttu áður.

Virðulegi forseti. Til að leysa stórt vandamál þarf forgangsröðun. Það þýðir að margt annað þarf að bíða. Ég hvet ríkisstjórnina til að láta gömul flokkspólitísk baráttumál eiga sig og einbeita sér að stóra viðfangsefninu. (Forseti hringir.) Eftir því er beðið.