157. löggjafarþing — 101. fundur,  28. apr. 2026.

Geðheilbrigðismál.

[14:46]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf):

Frú forseti. Mikilvægi öflugrar geðheilbrigðisþjónustu fyrir alla aldurshópa hefur aldrei verið meira en nú í okkar flókna samfélagi með miklu áreiti og hraða og geðræn vandamál leggjast á fólk burt séð frá stéttarstöðu. Aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum sem var samþykkt á Alþingi 2023 samanstendur af 27 aðgerðum og mikilvægt er að fylgja þeim vel eftir og hægt er að fylgjast með framgangi þeirra á síðu Stjórnarráðsins. Þó nokkrum aðgerðum er lokið og aðrar eru í vinnslu en sumar eru ekki enn hafnar, eins og það að notendastýrðar kannanir séu framkvæmdar árlega á geðheilbrigðisþjónustunni og niðurstöðurnar nýttar til umbóta. Það er mjög mikilvægt að heilbrigðiskerfið fylgi einstaklingi eftir að meðferð lokinni á heilbrigðisstofnun og að hann fái þjónustu við hæfi í öllum landshlutum og sé kallaður inn til samtals og farið yfir hans stöðu reglulega svo að hann týnist ekki í kerfinu. Staða einstaklinga er mismunandi af því að ekki eru allir svo vel settir að eiga einhvern náinn sér við hlið sem fylgir eftir réttindum þeirra og þörfum í heilbrigðisþjónustunni. Önnur aðgerð sem ekki er hafin og er mikilvæg er að starfshópur verði skipaður til ráðgjafar fyrir heilbrigðisráðherra um brýnar og mikilvægar bataeflandi aðgerðir og umbætur á húsnæði geðheilbrigðisþjónustunnar í landinu.

Ég vil nefna tvær mikilvægar aðgerðir sem nú eru í vinnslu; það að fólk með notandareynslu í starfi sé sem víðast í geðheilbrigðisþjónustunni og það að gagnreynd starfsendurhæfingarúrræði verði efld. Ég hef séð sjálf hve víða pottur er brotinn í geðheilbrigðismálum. Þótt þjónustan fari vissulega batnandi er gríðarlega mikilvægt að hún standi öllum til boða og sé fyrirbyggjandi frá unga aldri og að þjónustan sé öflug, bæði hjá ríki, sveitarfélögum og frjálsum félagasamtökum. Þau hafa vissulega staðið sig vel en samspil þessara þriggja aðila þarf að vera gott. Geðheilbrigðisþjónusta á að vera sjálfsagður hlutur í okkar velferðarsamfélagi og þar þurfum við virkilega að taka höndum saman öll og bæta úr þar sem á vantar.