157. löggjafarþing — 102. fundur,  29. apr. 2026.

heimsókn forseta efri deildar Sambandsþings Sviss.

[15:01]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Ég vil vekja athygli hv. alþingismanna á að forseti efri deildar Sambandsþings Sviss, herra Stefan Engler, er staddur á þingpöllum ásamt sendinefnd þingforsetans. Þau eru hér í heimsókn í Alþingishúsinu í tengslum við opinbera vinnuheimsókn til Íslands. Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða þingforsetann og sendinefnd velkomin í Alþingishúsið og vænti þess að heimsókn þeirra til Íslands verði til að styrkja tengslin á milli landa okkar. Alþingi vottar forseta Sambandsþings Sviss og svissnesku þjóðinni vináttu og virðingu og ég bið þingheim að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]