upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við ESB.
Frú forseti. Á sameiginlegum fundi utanríkismálanefndar og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis með fulltrúum Feneyjanefndarinnar í morgun var af hálfu gestanna lögð mikil áhersla á að spurning í væntanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu eða viðræður við Evrópusambandið væri skiljanleg öllum og allir skildu hana á sama hátt. En það var ekki síður lögð áhersla á að það væri á hreinu hvað tæki við ef atkvæði yrðu greidd með tillögunni eða meiri hluti fengist til að fallast á tillöguna. Þar vantar töluvert upp á. Fulltrúar Feneyjanefndarinnar bentu á að það gæti verið ráð að leita til Evrópusambandsins og fá svör frá því um það hvaða ferli taki við, hvernig verði brugðist við og hvað þurfi að gerast til að viðræður haldi áfram og með hvaða hætti þær viðræður verði. Ég nefni þetta hér, frú forseti, því að í mánuð hafa fulltrúar minni hlutans í utanríkismálanefnd beðið um að leitað yrði svara hjá Evrópusambandinu við nokkrum spurningum. Við því hefur enn ekki orðið. Við gerum enga kröfu um að þetta verði gert í krafti þingskapa, við gerum einfaldlega þá kröfu að utanríkismálanefnd Alþingis afli þeirra gagna sem nauðsynleg eru í þessu máli eins og utanríkismálanefnd hefur gert í stórum utanríkismálum í meira en öld eða þingið ella.