upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við ESB.
Virðulegi forseti. Það er auðvitað mikið áhyggjuefni að hér þurfi menn stöðugt að vera að koma upp hér í þingsal og ítrekað á nefndafundum og kalla eftir því að ákveðnar upplýsingar verði lagðar fram í þessu stóra máli. Við erum að tala um þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta er eitt stærsta mál sem hefur verið lagt fyrir þjóðina í áratugi. Það er einhver tregða hjá ríkisstjórnarflokkunum, bæði í nefndum og hér í þingsal, að leggja fram ítarlegar upplýsingar og leita eftir ítarlegum upplýsingum. Þetta eru auðvitað ekki boðleg vinnubrögð, virðulegur forseti. Ríkisstjórnin og ríkisstjórnarflokkarnir hljóta að vera farin að gera sér grein fyrir því að þetta verður ekki meðhöndlað sem eitthvert grín eins og kynning á einhverjum húsnæðispökkum. Það er ekki hægt að bera þetta saman við slík mál. Hér er miklu stærra og alvarlegra mál á ferðinni.