157. löggjafarþing — 102. fundur,  29. apr. 2026.

upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við ESB.

[15:10]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Það sem hv. þm. Pawel Bartoszek nefnir hér og ég hefði kannski átt að nefna er að við höfum einnig gert athugasemdir við það, gerðum það á fundi í dag, að eftir þessa mánaðarbið skuli hv. formaður nefndarinnar koma með tillögu sem hann kallar breytingartillögu en er bara tillaga um eitthvað allt annað. Við erum að biðja um upplýsingar frá Evrópusambandinu og það er í krafti þingskapalaga. Utanríkismálanefnd Alþingis getur einfaldlega sent beiðni á Evrópusambandið og spurt: Hafið þið kannski heyrt af því að hér er verið að ræða hugsanlegt aðildarferli Íslands að Evrópusambandinu? Gætuð þið upplýst okkur um hvað taki við fari fram svona þjóðaratkvæðagreiðsla? Hvers vegna skyldum við ekki gera það? Utanríkismálanefnd Alþingis hefur frá upphafi leitað eftir upplýsingum þar sem þær er að fá og frá þeim aðilum sem við á hverju sinni.