Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Það er næsta víst að í komandi sveitarstjórnarkosningum hér á höfuðborgarsvæðinu verður stærsta málið samgöngumál. Þessar kosningar sem fara í hönd núna eru síðasta tækifærið sem við fáum, kjósendur, til að koma í veg fyrir stærsta skipulagsslys og dýrkeyptasta skipulagsslys sögunnar, þ.e. uppbyggingu borgarlínu eins og hún hefur verið sett fram. Á sínum tíma — og ég býst við að margir sem hlustuðu á upphaf ræðu minnar hafi haldið að ég ætlaði að fara að tala um Landspítala, háskólasjúkrahús, en hann er í öðru sæti sem stærsta skipulagsslys sögunnar. Þannig er að það varð uppi nokkur fótur og fit um daginn þegar það kom í ljós hvernig borgarlínuáformin koma til með að snerta umferðaræð eins og Suðurlandsbraut sem verður gerð ónýt. Það er ekki hægt að leigja þar húsnæðið lengur vegna þess að menn vita að þarna verða þurrkuð út öll bílastæði o.s.frv. En hér er bara hálf sagan sögð, frú forseti, vegna þess að næst kemur röðin að Hverfisgötu sem verður náttúrlega eyðilögð. Þetta er gata sem þolir ekki umferð og þarna eiga að fara um 12 metra löng, 50 tonna skrímsli á sjö mínútna fresti. Ég verð að taka undir með Halla og Ladda sem sögðu í kvæði einhvern tímann: Mér þætti gaman að sjá það, þegar þessir vagnar taka beygjuna frá Hverfisgötu yfir á Lækjargötu sem þeir eiga að gera. Þeir eiga líka að fara yfir brúna yfir Skothúsveg, sem er rúmlega 100 ára gömul og þolir ekki þennan þunga og þarf væntanlega þá að endurbyggja eða byggja upp, og fara yfir brú yfir Fossvoginn, sem kostar á við þrjár brýr á Vestfjörðum til að þvera firði. Það mun heyrast í þeirri brú þannig að fólk á Kársnesinu sem er búið að kaupa eignir sem kosta frá 100 milljónum eiga eftir að vaka langar nætur í útsýninu þegar vælir stöðugt í brúnni allan sólarhringinn. Það verður, frú forseti, að nýta þetta tækifæri til að koma í veg fyrir að þessi ósköp gangi yfir (Forseti hringir.) börnin okkar og barnabörnin sem að sjálfsögðu munu súpa seyðið af þessu mislukkaða ævintýri.