157. löggjafarþing — 102. fundur,  29. apr. 2026.

Störf þingsins.

[15:24]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf):

Virðulegur forseti. Fram undan er 1. maí, alþjóðlegur baráttudagur verkafólks, og kröfugöngur og hátíðardagskrá víða um land, þar á meðal í mínu sjávarþorpi, Suðureyri, en þar hefur sú hefð verið til fjölda ára. Samstaða launafólks er mikilvæg um þau kjör og grundvallarmannréttindi sem áunnist hafa í gegnum tíðina og við verðum öll að standa vörð um árangur sem náðst hefur með baráttu genginna kynslóða og baráttu fólks allt fram á daginn í dag. Við lifum í hröðu tæknivæddu nútímasamfélagi þar sem við stöndum frammi fyrir fjölda áskorana, bæði að verjsa þau kjör og réttindi sem áunnist hafa og að sækja fram og krefjast þess að einhverjar stéttir falli ekki milli skips og bryggju. Í lífsgæðakapphlaupi þar sem peningar og völd draga oftar en ekki vagninn sitja ekki allir við sama borð. Hópur getur skammtað sér laun en aðrir hópar þurfa að berjast fyrir hverri krónu í launaumslagið og sínum réttindum.

Við eigum marga góða verkalýðsleiðtoga í dag sem berjast fyrir sitt fólk. En það er líka mikilvægt að skilningur og gott samstarf sé á milli ólíkra hópa og að höfrungahlaup fari ekki af stað þegar lægstu launin eru hífð upp í mannsæmandi framfærslu. Ég var svo heppin að vinna með Pétri heitnum Sigurðssyni, verkalýðsleiðtoga á Vestfjörðum, þau 16 ár sem ég leiddi verkalýðsfélag þar og bý alltaf að þeirri reynslu. Allir launþegar eru mikilvægir í samfélaginu og jöfnuður og réttlæti skapar gott samfélag. Það átak sem nú hefur farið af stað í auknu framboði á félagslegu óhagnaðardrifnu húsnæði skiptir miklu máli fyrir launafólk og er eitt af forgangsmálum stjórnvalda í dag. Flokkur fólksins berst fyrir velferð fyrir alla og sendir baráttukveðjur til launafólks og hvetur til þátttöku á baráttudegi verkafólks 1. maí næstkomandi um land allt.