Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Í morgun fór fram sameiginlegur fundur utanríkismálanefndar og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar með Feneyjanefnd Evrópuráðsins — sem er vel að merkja stofnun á vegum Evrópuráðsins en ekki Evrópusambandsins, svo það komi fram — vegna tillögu um þjóðaratkvæði um framhald aðildarviðræðna við ESB. Utanríkismálanefnd óskaði eftir áliti nefndarinnar, m.a. eftir áskorun formanns Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Guðrúnar Hafsteinsdóttur.
Mig langar að draga fram þrennt í umsögn Feneyjanefndarinnar. Feneyjanefndin var spurð hvort viðeigandi evrópskum stöðlum um þjóðaratkvæðagreiðslur, einkum leiðbeinandi reglum um góða starfshætti við þjóðaratkvæðagreiðslur, væri fylgt. Álit Feneyjanefndar er að almennum stöðlum sem settir eru fram í leiðbeinandi reglum um góða starfshætti við þjóðaratkvæði er fylgt. Nefndin kemur einnig með tilmæli sem koma fram í álitinu og lúta einkum að þörfinni fyrir öflugri upplýsingagjöf.
Varðandi orðalagið „framhald“ segir Feneyjanefndin, með leyfi forseta, að óháð því hversu nákvæmt hugtakið „að halda áfram“ er þá þurfi kjósendum að vera ljóst að enginn möguleiki sé fyrir því að einhver hluti samningaviðræðna sem fóru fram til ársins 2015 verði talinn endanlegur eða að þeim sé endanlega lokið og að þau mál sem rædd voru á þeim tíma séu enn háð nýjum samningaviðræðum og ný mál myndu vissulega koma fram ef viðræður hæfust að nýju. Með öðrum orðum, þó að það sé besta mál að upplýsa um allt sem kom fram og fór fram árið 2009–2013, samningsmarkmið, opnunar- og lokunarskilyrði, hlutaniðurstöður, þá má ekki skilja þá tilfinningu eftir hjá kjósendum að mati Feneyjanefndarinnar að það sem þar hafði verið ákveðið sé endanlegt og frágengið.
Í þriðja lagi segir Feneyjanefndin, með leyfi forseta, að það verði einnig að vera kjósendum ljóst að já-atkvæði myndi ekki sjálfkrafa leiða til aðildar að ESB heldur aðeins til opnunar samningaferils og ef þær viðræður yrðu árangursríkar yrði önnur þjóðaratkvæðagreiðsla um raunverulega aðild haldin á grundvelli niðurstaðna viðræðna. Allar hugmyndir um að spurningin ætti að vera hvort fólk vilji ganga í Evrópusambandið eru slegnar út af borðinu í áliti Feneyjanefndarinnar. Það er mikilvægt að þingheimur sé meðvitaður um þetta.
Forseti. Ég hef lokið máli mínu.