Störf þingsins.
Frú forseti. Í dag var birt ný mæling á verðbólgu hér á landi og það er sannarlega hægt að segja að það hafi verið jákvætt að sjá verðbólgu minnka þó að hækkun milli mánaða hafi þó verið of mikil að mínu mati. Það sem skiptir hins vegar máli í þessari stöðu sem uppi er núna er auðvitað að rýna svolítið í það hvað það er sem veldur þessum þrýstingi á mælinguna á milli mánaða. Sá liður sem hefur hvað mest áhrif núna á milli mánaða er liðurinn flutningar sem mælist hjá Hagstofu Íslands. Undir þeim lið er eldsneyti sem hefur hækkað hvað mest. Hækkun vísitölunnar milli mánaða var 0,81% en þar af eru eldsneytisáhrifin 0,56% og ljóst er að áhrif stríðsátaka á eldsneytisverð hafa bein áhrif á verðlag á Íslandi líkt og alls staðar í heiminum. Ég get ekki annað en bent á mikilvægi þess máls sem við ræddum í þingsal í gær og tökum til atkvæða síðar í dag. Með því að lækka tímabundið virðisaukaskatt á eldsneyti er með beinum hætti stigið inn og ráðist að rót vandans og með skýrum og afmörkuðum hætti stigið inn í aðstæður þar sem verðbólga og þrýstingur á verðlag myndast. Svona má beita sleggjunni á verðbólguna. Nú þurfum við öll að taka höndum saman til að halda verðbólguþrýstingi lágum í landinu, það er til hagsbóta fyrir allt fólk í landinu.
Frú forseti. Ég vil nýta þetta tækifæri og hvetja launafólk til að mæta í kröfugöngur sem verða víðs vegar um landið núna 1. maí. Launafólk stendur saman í sinni kröfugerð og það þarf að sýna viljann í verki og láta sjá sig í kröfugöngum.