157. löggjafarþing — 102. fundur,  29. apr. 2026.

Störf þingsins.

[15:35]
Horfa

Ingveldur Anna Sigurðardóttir (S):

Frú forseti. Við sitjum hér í merkilegum sal og erum kjörin til að stýra þessu landi. Meiri hlutinn hefur það hlutverk að stýra skipinu í ákveðna átt og minni hlutinn þarf að hafa skoðun á því hvort sú stefna sé hin rétta. Það sem við verðum að passa okkur á er að hafa ekki allt of mikið vit fyrir fólki og mín skoðun er sú að hreinlega vera ekki fyrir. En það eru örugglega einhverjir hérna á öðru máli. Forræðishyggjan er hættuleg, að taka fram fyrir hendur borgara eða setja skorður á frjálsar athafnir borgaranna með beinum eða óbeinum hætti getur verið varasamt. Ég og minn flokkur nefnilega treystum einstaklingnum og því að hann sé best fallinn til þess að ákveða hvernig hann hagar sínu lífi og hvernig hann ráðstafar sínum tekjum. Hlutir sem við eigum að banna hér í þessum sal eða hafa vit fyrir fólki um eru þeir hlutir sem til þess eru fallnir að gera sér eða öðrum mein; ofbeldi eða að tala með þeim hætti að það vegur að æru fólks, svo dæmi séu nefnd. Því miður hefur stundum verið gengið of langt í viðleitni til að hafa vit fyrir öðrum og mörg bönnin eru óskiljanleg. Við bönnum fullorðnum mönnum að lúberja hvorn annan í blönduðum bardagaíþróttum á sama tíma og okkur finnst Gunnar Nelson alveg æðislegur. Við bönnum 18–19 ára fullorðnum einstaklingum að kaupa áfengi á sama tíma og við elskum að detta í það. Því hef ég verið að melta það að leggja fram frumvarp til laga um að það sé bannað að banna hluti. — Ég hef lokið máli mínu, forseti.