157. löggjafarþing — 102. fundur,  29. apr. 2026.

Störf þingsins.

[15:37]
Horfa

Jón Gnarr (V):

Frú forseti. Mig langar aðeins að tala um ferðalög, óvissuferðir. Pabbi minn var mikill sjálfstæðissinni og lýðveldissinni og einhverra hluta vegna vildi hann ekki fara til Kaupmannahafnar, hafði andstyggð á Danmörku. Mamma átti aftur á móti ættingja í Kaupmannahöfn og vildi mjög gjarnan fara þangað en pabbi vildi ekki sjá það. Alltaf þegar það var verið að ræða um að fara kannski til Kaupmannahafnar að heimsækja systur mömmu þá hófust þrætur og pabbi reyndi að telja allt til: Þetta er ómögulegt, þetta gengur ekki og hvar eigum við þá að gista og hvar verðum við og hvernig eigum við að komast þangað og hvernig verður það? Stundum fóru þau ekki til Kaupmannahafnar heldur oft bara til Búlgaríu, þangað sem pabbi vildi fara, eða Þrándheims. Pabbi reyndi meira að segja að hvetja fólk sem var á leiðinni til Kaupmannahafnar til að fara frekar til Þrándheims.

Ég tala um þetta út af þessum umræðum um Evrópusambandið. Ég hef aldrei gengið í Evrópusambandið, ég hef enga reynslu af því. En ég veit að það er engin ein leið rétt til að ganga í það. Það eru alls konar leiðir. Nú stöndum við hérna að því að halda þjóðaratkvæðagreiðslu, lýðræðislega, spyrja fólkið í landinu: Eigum við að skoða þetta? Það eru byrjaðar deilur um orðalag, óvissu og alls konar. Hvernig á að orða þetta, á að hefja viðræður, á að halda áfram viðræðum o.s.frv.? Mér finnst ekkert svo flókið við þetta og ég held að almenningur sé ekki að flækja þetta mikið fyrir sér og það gengur út á, bara á almennu máli: Eigum við að skoða þetta Evrópusambandsdæmi eða ekki? Alveg sama hvernig við orðum þetta. Mér finnst þetta orðið bara svolítill orðhengilsháttur og þetta er líka svona deila um keisarans skegg. Við eigum bara að gera þetta, (Forseti hringir.) sjá hvað fólk segir. Og það er allt í lagi að vera með grín en pössum okkur á því að missa okkur ekki í sprell.