157. löggjafarþing — 102. fundur,  29. apr. 2026.

Störf þingsins.

[15:40]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Krýsuvíkurleiðin svokallaða er orðin ein af mikilvægustu úrræðaleiðum í landinu fyrir fólk í fíknivanda en starfsemin í Krýsuvík er 40 ára um þessar mundir. Tímamótunum var fagnað í síðustu viku með hátíðlegri athöfn þar sem hugsjónafólk sem stutt hefur starfsemina með ráðum og dáð kom saman, brautryðjendur og síðast en ekki síst einstaklingar sem náð hafa bata í Krýsuvík. Krýsuvíkurleiðin hefur þróast í gegnum árin en stendur enn á sterkum grunni frumkvöðlanna, 12 spora meðferð sem byggir á orðunum meðferð, nám, vinna. Krýsuvík er almannaheillafélag sem reiðir sig að mestu leyti á fjáraflanir, styrki frá almenningi, fyrirtækjum og öðrum í þjóðfélaginu. Ríkið hefur stutt starfsemina umtalsvert árlega, misjafnlega mikið milli ára, og tryggir þannig ákveðinn fjölda meðferðarplássa. Mikil þróun og uppbygging starfseminnar hefur átt sér stað í Krýsuvík á allra síðustu árum, t.d. var stofnuð sérstök kvennadeild og skjólstæðingum heimilisins fjölgað úr 20 í 30 á hverjum tíma. En þrátt fyrir fjölgun plássa hefur ekki náðst að stytta biðlistann þar sem sífellt fleiri vilja komast í meðferð þangað og fólki í fíknivanda fjölgar. Framtíðarsýn Krýsuvíkur er að fjölga meðferðarplássum enn frekar og stytta biðtímann.

Um leið og ég óska Krýsuvíkursamtökin til hamingju með 40 ára afmælið og þakka brautryðjendum og öðru hugsjónafólki sem komið hefur að þessari ómetanlegu starfsemi hvet ég ráðherra til að tryggja framtíð Krýsuvíkur með langtímasamningi og fyrirsjáanleika. Krýsuvík er frábært dæmi um hvað almannaheillafélag getur haft mikla þýðingu þar sem félagsstarf, sveitarfélag og ríki vinna vel saman. Virkjum og eflum frumkvöðla- og samfélagsþjónustuandann sem Krýsuvík býr yfir og hefur reynst fjölda fólks ómetanlegt í að komast aftur á beinu brautina.