157. löggjafarþing — 102. fundur,  29. apr. 2026.

losunarheimildir.

449. mál
[16:00]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Karl Gauti Hjaltason) (M):

Herra forseti. Ég ætla að spyrja hæstv. loftslagsráðherra um losunarheimildir. Kostnaður Íslands vegna útblásturskerfis Evrópusambandsins mun margfaldast á næstu árum og hafa verið nefndar tölur, allt að 25 milljörðum í þessu samhengi. Haft er eftir hæstv. ráðherra í grein frá því í september í fyrra að þetta gæti verið allt að 11 milljörðum kr. en segir þar, með leyfi herra forseta, að engin ákvörðun liggi fyrir um kaup á losunarheimildum fyrir alla þá fjárhæð. Þessi kostnaður í dag mun vera um 5 milljarðar. Hæstv. ráðherra hefur sjálfur nefnt töluna 11 milljarðar. Hvernig sem það er þá er hér um verulega hagsmuni að ræða. Þetta kerfi, sem Evrópusambandið kom á laggirnar fyrir tveimur áratugum með þeim ásetningi að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, er byggt upp sem flókið viðskiptakerfi með mengunarkvóta sem sambandið hefur síðan markvisst minnkað. Þar af leiðandi er orðið dýrara að losa þessar lofttegundir og jafnframt ár frá ári sífellt felldar niður fleiri og fleiri undanþágur. Kerfið hefur sannarlega undið upp á sig og fleiri og fleiri atvinnugreinar lent undir því. Þetta hefur vitanlega leitt af sér minni samkeppnishæfni þeirra greina og þeirra landa sem hafa þurft að kaupa sína losun meðan aðilar utan kerfisins sleppa við slíkt, lönd utan kerfisins til að mynda. Ísland hefur og mun koma sérstaklega illa út úr þessu fyrirkomulagi Evrópusambandsins eins og stundum áður því að ekkert tillit er tekið til sérstöðu okkar hér langt úti í hafi og spölur til annarra landa hvað ferðalög og flutninga alla varðar. Frestir og undanþágur sem við höfum haft skjól af til skamms tíma eru allir að renna út, bæði á sviði flugs og skipaferða og einnig vegna álframleiðslu, innan fárra ára. Ekkert er þarna horft til þess að Ísland réðst í umfangsmiklar aðgerðir á þessu sviði fyrir margt löngu sem hafa stuðlað að gífurlegum samdrætti í losun okkar Íslendinga á gróðurhúsalofttegundum. — Hef ég ekki lengri tíma en þetta, herra forseti? Þá verð ég bara að sleppa hálfri ræðunni.

Ég ætla að spyrja hæstv. ráðherra: Hvaða leiðir sér hæstv. ráðherra með að þessar hörmungar gangi ekki hér yfir land og þjóð? Hefur ríkisstjórnin ráðgert að losa Ísland undan þessum skyldum? Ef svo er, hverjar eru þessar ráðstafanir? Er í fyrsta lagi verið að tala um varanlega sérlausn fyrir Ísland í ETS-kerfinu? Er verið að tala um endurskoðun á innleiðingu umhverfisviðauka EES-samningsins og ETS-löggjafarinnar? Eða í þriðja og ýtrasta lagi: Eigum við að beita almennum verndarráðstöfunum samkvæmt heimildum í EES-samningnum sjálfum?