157. löggjafarþing — 102. fundur,  29. apr. 2026.

losunarheimildir.

449. mál
[16:13]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Karl Gauti Hjaltason) (M):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir hans svör. Mér heyrist á honum að ríkisstjórnin stefni að því að fá varanlegar sérlausnir fyrir Ísland og að reynt verði að fá í gegn endurskoðun á þessu kerfi og að Íslendingar losni þar með undan þeim miklu álögum sem verða til fyrir fólk og fyrirtæki á Íslandi hvað varðar flug, hvað varðar skipaferðir og áliðnaðinn. Mér heyrist ekki betur en að hann ætli að vinna að því. Ég óska honum auðvitað alls góðs í þeirri vegferð, í þeim samningaviðræðum við aðila úti í Evrópu.

Hins vegar vakna við þetta óneitanlega spurningar. Ef þetta mun ekki takast, hæstv. ráðherra, þá hafa fjölmiðlar haft eftir öðrum hæstv. ráðherra ríkisstjórnarinnar, Ingu Sæland, þar sem hún segir beinlínis að hún hafni þessum stórfelldu útgjöldum og er þar að tala um þessi kaup á losunarheimildum. Hún segir, með leyfi forseta: „Ég vildi frekar segja mig úr öllu svona samkomulagi,“ ef við þurfum að borga þetta. Ég get ekki lesið í þetta öðruvísi en svo, herra forseti, að ef þessi undanþága, þessi varanlega sérlausn fyrir okkur, gangi ekki eftir í þessum samningum þá sé ríkisstjórnin sprungin. Þá muni Flokkur fólksins, með Ingu Sæland í fararbroddi, ekki lengur styðja þessa ríkisstjórn. Hún vill frekar segja sig frá þessu samkomulagi. Það er hennar ráðgjöf til hæstv. ráðherra.

En auðvitað er þetta orðið mjög flókið, herra forseti, þegar verið er að tala hér um ETS2, ETS og losunarheimildir og ég er að tala um 11 milljarða og ráðherra segir að það séu einhver önnur útgjöld. Gott og vel að ég átti mig ekki algerlega á þessu því að þetta virðast vera endalaus útgjöld. Ég hef nú oft verið að tala um útgjöld til loftslagsaðgerða sem eru 23 milljarðar á ári. (Forseti hringir.) Þarna eru 11 milljarðar sem eru ekki það sem ég er að tala um en í Morgunblaðinu er sagt að það séu 25 milljarðar fyrir þetta losunarkaupakerfi. Samtals eru þetta orðnar ansi háar og flóknar upphæðir, herra forseti.