jöfn staða og jafn réttur kynjanna.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, um stöðu og skyldu fyrirtækja og stofnana til jafnlaunavottunar og jafnlaunastaðfestingar. Þá eru lagðar til nauðsynlegar breytingar á lögum um stjórnsýslu jafnréttismála, nr. 151/2020, til samræmis.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og umsagnir bárust. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar árétta sérstaklega eftirfarandi: Nefndin fjallaði um markmið laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, sem er að koma í veg fyrir mismunun á grundvelli kyns og koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kynjanna á öllum sviðum samfélagsins.
Í greinargerð með frumvarpinu er rakið að lög um jafnlaunavottun hafi átt þátt í viðhorfsbreytingu á vinnumarkaði með því að festa í sessi framkvæmd jafnlaunareglunnar um sömu laun fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. Þrátt fyrir það hefur jafnframt komið fram að innleiðing og vottun jafnlaunakerfa og viðhald vottunar innan fyrirtækja og stofnana hafi reynst kostnaðarsamt og þótt óþarflega flókið, ekki síst í minni skipulagsheildum.
Með frumvarpinu er lagt til að jafnlaunavottunin verði aflögð í núverandi mynd án þess þó að hvikað frá markmiðum laganna um að sporna gegn launamismunun á grundvelli kyns. Í stað jafnlaunavottunar verði fyrirtækjum og stofnunum gert að skila til Jafnréttisstofu gögnum um starfaflokkun og launagreiningu ásamt tímasettri úrbótaáætlun ef kynbundinn launamunur mælist þar sem fram kemur hvernig brugðist skuli við og hvernig hann verði leiðréttur. Einnig er lagt til að breyta skuli ákvæði um fjölda starfsfólks og að miða skuli við fyrirtæki og stofnanir þar sem 50 eða fleiri starfa að jafnaði á ársgrundvelli.
Fyrir nefndinni komu fram ólík sjónarmið varðandi afnám lagaskyldu um jafnlaunavottun og hækkun viðmiðunarmarka þannig að fyrirtækjum og stofnunum, þar sem 50 eða fleiri starfa að jafnaði á ársgrundvelli, beri að skila umbeðnum gögnum til Jafnréttisstofu. Bent var á að núverandi kerfi hafi reynst íþyngjandi og kostnaðarsamt án þess að sýnt hafi verið fram á að það hafi bein áhrif til að draga úr kynbundnum launamun. Jafnframt komu fram efasemdir um hvort frumvarpið næði þeim markmiðum sem að er stefnt með skýrslugjöf á þriggja ára fresti, þar sem hluti vinnumarkaðarins er undanskilinn, en með því verði möguleikar starfsfólks til að fylgjast með þróun launasetningar of takmarkaðir.
Meiri hlutinn tekur undir markmið frumvarpsins um að einfalda kerfið og auka hagræðingu fyrir atvinnulífið. Meiri hlutinn áréttar að með skýrslugjöf um kynbundinn launamun og skilum úrbótaáætlunar staðfesti atvinnurekendur að málefnaleg sjónarmið liggi til grundvallar við launaákvarðanir. Það komi þó ekki í veg fyrir að einstaklingsbundnir þættir séu metnir til launa.
Þá fjallaði nefndin um að með frumvarpinu verði Jafnréttisstofu falið að sinna eftirliti og eftirfylgni með reglubundinni skýrslugjöf um kynbundinn launamun. Í erindi Jafnréttisstofu í tengslum við málið kemur fram að áhersla verði lögð á að tryggja að atvinnurekendur geti skilað gögnum og upplýsingum til Jafnréttisstofu í gegnum upplýsingakerfi í rafrænni upplýsingagátt þar sem aukin sjálfvirkni muni einfalda alla úrvinnslu. Þar af leiðandi sé ekki gert ráð fyrir að fjölga þurfi starfsfólki hjá Jafnréttisstofu verði frumvarpið að lögum en mikilvægt sé að tryggja fjármagn til reksturs á slíku upplýsingakerfi.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að gert verði ráð fyrir að þróaðar verði stafrænar lausnir fyrir Jafnréttisstofu vegna gagnaskila fyrirtækja og stofnana og að fjármögnun verkefnisins sé tryggð.
Meiri hlutinn bendir á að frekari vinna standi yfir hvað varðar sameiginlega vinnu stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um virðismat starfa í þágu launajafnréttis. Þá var nýlega samþykkt á Alþingi þingsályktun um framkvæmdaáætlun kynjajafnréttismála fyrir árin 2026–2009 sem kveður á um fjölbreyttar aðgerðir sem ætlað er að stuðla að kynjajafnrétti á ýmsum sviðum samfélagsins, þar með talið á vinnumarkaði. Einnig má vænta þess að tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins um launagegnsæi verði innleidd hér á landi, en í greinargerðinni kemur fram að frumvarpið sé unnið í samræmi við kröfur tilskipunarinnar að miklu leyti.
Meiri hlutinn undirstrikar að ekki skuli hvikað frá því markmiði að sporna gegn launamismunun á grundvelli kyns og að áfram verði unnið að því markmiði á grundvelli laga nr. 150/2020, sem og með því að draga úr kerfisbundnu vanmati á kvennastörfum og kynskiptingu vinnumarkaðarins. Breytingunum sé ekki ætlað að draga á neinn hátt úr þeim kröfum að atvinnurekendur tryggi að launaákvarðanir séu teknar út frá málefnalegum og kynhlutlausum viðmiðum en á skilvirkari hátt en á grundvelli núgildandi kerfis.
Meiri hlutinn leggur til breytingar á frumvarpinu vegna ábendingar Persónuverndar um persónugreinanlegar upplýsingar. Í umsögn Persónuverndar er bent á að skýrslugjöf skv. 4. gr. frumvarpsins kunni að fela í sér vinnslu persónuupplýsinga þó að gögnin séu ekki tengd beint við nöfn eða kennitölur ef unnt er að draga ályktanir út frá þeim um ákveðna einstaklinga. Persónuvernd leggur til í umsögn sinni að kveðið verði skýrar á um að upplýsingagjöf skv. 4. mgr. 4. gr. skuli fara fram í samræmi við lög nr. 90/2018, eða að upplýsingar verði að öðrum kosti gerðar ópersónugreinanlegar. Meiri hlutinn tekur undir ábendingar Persónuverndar og leggur til orðalagsbreytingu á ákvæðinu hvað það varðar. Þá leggur meiri hlutinn til eina orðalagsbreytingu sem er ekki ætlað að fela í sér efnislega breytingu.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir. Undir álit meiri hlutans rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Víðir Reynisson, Guðmundur Sigurjónsson, Pétur Björgvin Sveinsson og Rúnar Sigurjónsson.
Að lokum langar mig að þakka nefndinni fyrir góð störf og góðar umræður þar um. Málið hefur unnist mjög vel í nefndinni. — Ég hef stiklað á stóru og hef lokið máli mínu.