157. löggjafarþing — 104. fundur,  29. apr. 2026.

stjórn fiskveiða.

531. mál
[21:01]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir hönd meiri hluta atvinnuveganefndar fyrir nefndaráliti um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, sérstakar ívilnanir og jöfnunarheimild.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá innviðaráðuneyti, Landssambandi smábátaeigenda og Hafrannsóknastofnun. Nefndinni bárust umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006. Lagt er til að felld verði brott ákvæði laganna um línuívilnun, rækju- og skelbætur og að mælt verði fyrir um tímabundna jöfnunarheimild vegna strandveiða.

Með a-lið 3. gr. frumvarpsins er lagt til að við lög um stjórn fiskveiða bætist ákvæði til bráðabirgða sem kveði á um heimild ráðherra til að ráðstafa auknu aflamagni til strandveiða til viðbótar við úthlutað aflamagn á fiskveiðiárinu, sem nemur allt að 2.700 tonnum af óslægðum þorski. Í greinargerð með frumvarpinu segir að heimildin sé hugsuð sem sérstök brúarráðstöfun á meðan unnið er að innleiðingu nýs skipulags á ráðstöfun 5,3% kerfisins og til að mæta þörf fyrir strandveiðar á sama tímabili. Heimildin sé afmörkuð og tímabundin við þetta tiltekna fiskveiðiár. Gert er ráð fyrir að það aflamark sem verði ráðstafað verði jafnað gagnvart því sem dregið verður frá leyfilegum heildarafla á næstu fiskveiðiárum og að jöfnun verði að fullu lokið eigi síðar en á fiskveiðiárinu 2029/2030.

Meiri hlutinn undirstrikar mikilvægi þess að við framkvæmd jöfnunar skuli þess gætt að hún bitni ekki á lögbundnum forgangsverkefnum innan hins svokallaða 5,3% kerfis, svo sem samningsbundnum verkefnum Byggðastofnunar. Mikilvægt er að efla og tryggja aflaheimildir til 48 daga í strandveiðum til framtíðar við endurskoðun á 5,3% byggðahluta fiskveiðistjórnarkerfisins.

Ég ætla aðeins að renna hér yfir breytingar á frumvarpinu. Í nokkrum umsögnum sem bárust nefndinni voru gagnrýnd þau ákvæði frumvarpsins sem snúa að afnámi línuívilnunar og rækju- og skelbóta. Þess ber að geta að nefndin óskaði eftir því að umsagnaraðilar sem fengu senda umsagnarbeiðni frá nefndinni myndu einskorða umsögn sína við a-lið 3. gr. frumvarpsins, enda hugðist nefndin afmarka umfjöllun sína við það ákvæði. Leggur meiri hlutinn til að önnur ákvæði frumvarpsins, þ.e. þau er varða línuívilnun og rækju- og skelbætur, falli brott. Meiri hlutinn beinir því til ráðherra að taka breytingar á línuívilnun og rækju- og skelbótum til skoðunar við heildarendurskoðun á byggðakerfi 5,3% hluta fiskveiðistjórnarkerfisins.

Þá er lögð til orðalagsbreyting á 3. málslið a-liðar 3. gr. sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif á frumvarpið.

Að þessu framansögðu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir. Þar á meðal er breyting um að fyrirsögn frumvarpsins orðist svo: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (jöfnunarheimild).

Jón Gunnarsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Kristján Þórður Snæbjarnarson var fjarverandi við afgreiðslu en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa. Þess utan rita sú sem hér stendur undir þetta nefndarálit, Lilja Rafney Magnúsdóttir, framsögumaður málsins, Eiríkur Björn Björgvinsson, Kristján Þórður Snæjarnarson, Ingvar Þóroddsson, Sigurjón Þórðarson og Eydís Ásbjörnsdóttir, hv. þingmenn.

Ég vil lýsa ánægju minni yfir því að það náðist þetta samkomulag sem um getur, um að koma þessu máli í gegn, þó að það hefði að öllu jöfnu verið til þess fallið að klára málið eins og það lá fyrir. En ég hef skilning á því að það þurfi að fara betur yfir það og að tíminn verði notaður í það fram að næsta hausti að vinna að heildarendurskoðun á þessum hluta kerfisins, 5,3%. Það verður horft til þess að þær aðgerðir sem þar eru undir nýtist sem best þessum minni sjávarbyggðum og skili sér í heimabyggð til þeirra aðgerða sem ætlast er til, að þetta séu byggðaaðgerðir sem nýtist minni og meðalstórum útgerðum og fiskvinnslu í landi. Ég hef trú á því að við getum komið með gott frumvarp í haust og vonast til að minni hluti atvinnuveganefndar leggi hönd á plóginn þar með uppbyggilegum hætti.

Annars bara þakka ég nefndarmönnum fyrir þá samvinnu sem þarna liggur undir og að við þurfum ekki að taka inn öll ágreiningsmál sem kannski fylgja upphaflegu frumvarpi í þessari umræðu, heldur sé þetta samkomulag um að það fari þessi 2.700 tonn til strandveiðanna í sumar. Síðan vitum við að það getur komið meira af skiptimarkaði þegar líður á sumarið, en svo að það sé tryggt að strandveiðarnar verði sem öflugastar í sumar og vonast maður til að það dugi í þessa 48 daga. Það hefur aldrei verið sett meira í strandveiðar en lítur út fyrir að verði á þessu sumri og það er mjög jákvætt því að þetta hefur eflt byggðirnar og þetta hefur verið til þess að styðja við annað í þessum byggðum. Þó að þetta séu ekki nema fjórir mánuðir þá eru margir hverjir í annarri vinnu hinn hluta ársins, hvort sem það er til sjós eða tengt fiskveiðum eða bara í einhverri annarri vinnu, og allt styður þetta hvort annað. Þetta er líka eini möguleikinn fyrir ungt fólk til að máta sig við það að fara til veiða. Við þekkjum það að strandmenning við strendur Íslands hefur verið til fjölda fjölda ára og við verðum að standa vörð um að hún haldist áfram þó að margt sé breytt í henni veröld. En ég þakka fyrir góða vinnu atvinnuveganefndar í þessu máli.