afbrigði.
Samkvæmt starfsáætlun Alþingis verða nefndadagar í næstu viku, 4., 5. og 6. maí, sem eru síðustu þingdagarnir áður en gert verður hlé vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Ekki eru fyrirhugaðir þingfundir þá viku og má ætla að margir þingmenn verði að störfum annars staðar en við Austurvöll, t.d. í landsbyggðarkjördæmunum. Forseti leggur því til að veitt verði tímabundin afbrigði frá þingsköpum, skv. 99. gr. þingskapa, um að víkja frá 2. málslið 1. mgr. 17. gr. um heimild til að sækja nefndarfund með notkun fjarfundarbúnaðar þá sérstaklega stendur á, og einnig frá 22. gr. um ályktunarbærni nefndarfundar, svo þingmenn sem eru fjarstaddir geti sótt nefndarfund með fjarfundarbúnaði þó að skilyrði 2. málsliðar 1. mgr. 17. gr. þingskapa séu ekki fyrir hendi.
Forseti bendir á að með afbrigðunum er vikið frá því skilyrði þingskapa og þeirri meginreglu að nefndarmenn þurfi að vera staddir á fundum eða nýta heimild 2. málsliðar 1. mgr. 17. gr. þingskapa að uppfylltum skilyrðum þeirrar greinar, til að mynda ályktunarbæran nefndarfund.
Forseti brýnir fyrir þingmönnum að nefndarfundir þessa vikuna verða að meginstefnu staðfundir en þingmönnum, og þá fyrst og fremst landsbyggðarþingmönnum, er gefinn kostur á að sækja fund með fjarfundarbúnaði verði þeir staddir í kjördæmum sínum af einhverjum ástæðum.
Leggur forseti til að afbrigði þessi verði veitt og þau nýtt ef þörf krefur nefndardagana 4., 5. og 6. maí. Afbrigðin skoðast samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.