staða efnahagsmála.
Frú forseti. Ég vil beina fyrirspurn minni til hæstv. forsætisráðherra um efnahagsstöðuna. Ríkisstjórnin hefur frá fyrsta degi talað eins og hún sé með eitthvert plan. Ég held að hæstv. forsætisráðherra sé fær hagfræðingur, og ég vil ekki gera lítið úr því, en við getum ekki lokað augunum fyrir raunveruleikanum. Hann sjá allir nema hæstv. forsætisráðherra og hennar ríkisstjórn. Hann finna allir nema hæstv. ríkisstjórn. Verðbólgan er enn of há, stýrivextir fara hækkandi og atvinnuleysi er meira en við viljum sætta okkur við. Fjölskyldurnar í landinu finna fyrir öllum breytingum á húsnæðislánum sínum. Ungt fólk horfir á fasteignamarkaðinn þar sem sífellt erfiðara er að koma sér fyrir. Fyrirtæki halda að sér höndum vegna óvissu, hærri kostnaðar og skattstefnu sem dregur úr fjárfestingu og verðmætasköpun í landinu. Verðmætasköpunarhaustið og verðmætasköpunarvorið komu aldrei, hvorki í veðurfarslegum né efnahagslegum skilningi. Þetta er ekki bara pólitískt mat stjórnarandstöðunnar, þetta er sú tilfinning sem allur almenningur hefur. Þetta er það sem atvinnulífið hefur varað við. Þetta er það sem tölurnar sýna. Raunveruleikinn blasir við öllum nema hæstv. ríkisstjórn. Forsætisráðherra lofaði stöðugleika, lægri vöxtum og ábyrgð í efnahagsmálum en nú sjáum við hallærisplanið í framkvæmd; meiri útgjöld, minna aðhald og hærri skattar.
Spurning mín er því einföld: Ætlar hæstv. forsætisráðherra að breyta um stefnu eða ætlar hún áfram að biðja fólkið í landinu að treysta ríkisstjórninni frekar en sínu eigin heimilisbókhaldi?