staða efnahagsmála.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Við gerum okkur alveg grein fyrir því hver staðan er. Við áttum okkur t.d. á því hvernig verðlag hefur verið að þróast á undanförnum mánuðum og árum, ef svo má segja, m.a. út af stöðu á vinnumarkaði og það er ekki auðleyst vandamál. Það hafa verið ákveðnir erfiðleikar þegar kemur að vinnumarkaðsmálum í talsverðan tíma en þrátt fyrir það hafa þessir aðilar sest niður við borðið saman, þar á meðal á þjóðhagsráðsfundi í gær, og eru að leita leiða til að koma á stöðugleika á vinnumarkaði. Fólk hefur kannski fyrst og fremst haft áhyggjur af launaskriði umfram ágæta kjarasamninga. Verkalýðshreyfingin samdi vel á sínum tíma en það er launaskrið umfram kjarasamninga sem hefur verið vandamálið og það er eitthvað sem við þurfum að taka á, bæði hjá hinu opinbera, m.a. kjarasamningar sem þessi ríkisstjórn erfði eftir síðustu ríkisstjórn, en líka taka á öðrum þáttum t.d. á almennum markaði. Ég ætla ekki að standa hér og halda því fram að þetta sé auðvelt verkefni. Þetta er hagsaga Íslands og þetta hefur alltaf verið áskorun. Hins vegar er samtalið mjög virkt núna.
Aftur á móti erum við líka meðvituð um stöðu mála út af alþjóðamálum. Hormússund hefur verið meira og minna lokað með einum eða öðrum hætti í allt of langan tíma og það hefur haft áhrif á olíuverð og er að smitast núna yfir í verðbólgu. Við erum að grípa til ráða vegna þessara ytri áfalla til að koma í veg fyrir að þetta smitist yfir í almennt verðlag, ýfi verðbólguvæntingar að óþörfu og ég bind væntingar við að þetta hafi áhrif. Við höfum verið að hvetja til þess að fyrirtæki líti líka í eigin barm hvað þetta varðar og við reynum að ná a.m.k. þessum kúfi aðeins niður. Þetta er auðvitað áskorun en það breytir því ekki að við erum ekki að fara að skipta um kúrs í ríkisfjármálum. Ef hér er verið að biðja um að afkoman versni, að við förum í frekari útgjaldatillögur eða eftirgjöf á tekjum til þess eins, ja, að skapa okkur tímabundnar vinsældir þá kemur það ekki til greina. Við höldum kúrs hvað afkomuna varðar (Forseti hringir.) en samtalið við vinnumarkaðinn er virkt, og eins og sást hér í þinginu í gær getum við brugðist við skammtímaaðstæðum.