staða efnahagsmála.
Frú forseti. Ég þakka fyrir svarið en þetta er einmitt vandinn. Þetta er vandinn hjá forsætisráðherra. Hér kemur forsætisráðherra og skellir skuldinni á aðila vinnumarkaðarins, það séu aðilar vinnumarkaðarins sem beri ábyrgð á háum vöxtum og hárri verðbólgu og þeir hafi fundað í gær, þeir. En vandamálið er ekki vinnumarkaðurinn. Vandamálið er aðgerðaleysi þessarar ríkisstjórnar. Vandamálið eru ríkisútgjöld þessarar ríkisstjórnar. Þess vegna eru allir komnir með nóg. Það eru allir komnir með nóg af útskýringum og afsökunum því það vantar raunverulegt aðhald frá ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Það vantar skýra forgangsröðun. Það sem vantar er að ríkisstjórnin skilji að það er verðmætasköpun í atvinnulífinu sem byggir velferð og er forsenda þess að ná niður verðbólgu og vöxtum í landinu.
Ég vil því spyrja hæstv. forsætisráðherra aftur: Er þetta virkilega planið? Er það tímabundin lækkun á eldsneytisskatti og meiri verðlagsvöktun á meðan heimilin glíma áfram við vexti, verðbólgu og óvissu? Er þessi plástur stóra planið, stóra hallærisplanið fyrir þjóðarbúið?