staða efnahagsmála.
Frú forseti. Hér er teiknuð upp mjög svört mynd. Ég ætla bara að ítreka að það kemur ekki til greina að við hverfum frá okkar plönum. Við ætlum ekki að taka upp plan Sjálfstæðisflokksins sem m.a. færði okkur 9,25% stýrivexti og 10% verðbólgu á síðasta kjörtímabili. Blessunarlega erum við fjarri þeim tölum og blessunarlega erum við komin á þann stað í efnahagsumræðu á Íslandi að okkur þyki um of að sjá verðbólgu í kringum 5%. Blessunarlega erum við á þeim stað að við viljum gera betur og já, við ætlum að gera betur. Við erum að laga ríkisfjármálin. Það koma upp hlutir eins og lokun Hormússunds. Það þarf að taka á því. En ég vil fá að segja, af því að ég vil ekki að það séu lögð orð í munn: Hér er enginn að kenna aðilum vinnumarkaðarins sérstaklega um. Hér er bara meðvitund um það að það þarf ekki einn aðila til, það þarf marga til. Það þarf samstillt átak og við vitum vel að við þurfum að taka á ákveðnum þáttum, bæði á sviði atvinnurekenda, á sviði vinnumarkaðar og hjá ríkinu. (Forseti hringir.) Ríkið er að gera sitt, samtalið er virkt og við ætlum að halda kúrs.