157. löggjafarþing — 105. fundur,  30. apr. 2026.

stefna í málefnum innflytjenda.

[10:42]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Daglega horfum við nú upp á hræðilegar afleiðingar stjórnleysis í innflytjendamálum á Íslandi þar sem þróunin hefur verið alveg ótrúlega hröð til hins verra, sérstaklega vegna þess að íslensk stjórnvöld virðast ekki geta eða vilja læra af reynslu annarra. Menn hafa endurtekið öll sömu mistök og nágrannaþjóðirnar gerðu. Hér er ekki einungis um hælisleitendakerfið að ræða heldur einnig misnotkun annarra kerfa. Fólk er nú orðið hrætt við að fara á staði hér í Reykjavík og Reykjanesbæ t.d. sem enginn óttaðist að fara á fyrir fáeinum árum síðan. Gengi ungra manna fara um og áreita fólk, ofbeldisgengi ráðast á menn jafnvel af handahófi. Við heyrum nú meira að segja fréttir af því að hópar erlendra manna tæli barnungar stúlkur með aðferðum sem líkjast mjög því sem sérstaklega Bretland gekk í gegnum og tók ekki á. Þar varð vandinn aðeins stærri og varð að miklu samfélagsmeini. Lögreglan varar enn og aftur við því að við stefnum hraðbyri í átt að sænsku ástandi hvað varðar skipulagða glæpastarfsemi.

Nú spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Kallar þetta ekki á alvöruviðbrögð? Litlu útlendingamálin sem ríkisstjórnin hefur komið með eða kynnt breyta engu um þessa heildarmynd. Ég skal láta hjá líða að nefna þá hættu sem fælist í því að dragast inn í hælisleitendapakka Evrópusambandsins. En ætlar ekki hæstv. forsætisráðherra að taka af skarið? Er ekki komið tilefni til þess og að líta til Danmerkur, til flokkssystur sinnar í Danmörku, sem sagði: Við viljum enga hælisleitendur hingað. Við munum sjálf velja hverjir koma til landsins. Taka á móti hælisleitendum, jú, en enginn sem kemur til Danmerkur og sækir þar um hæli á að fá hæli í landinu. (Forseti hringir.) Þurfum við ekki að ná tökum á ástandinu með alvöruaðgerðum og alvörustefnubreytingum?