rammaáætlun um endurreisn samfélagsins í Grindavík.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að spyrja mikilvægra spurninga og sannarlega eru málefni Grindavíkur okkur ofarlega í huga. Ég fundaði núna fyrr í vikunni með Járngerði. Ég er að fara að hitta bæjarstjórn Grindavíkur á eftir og Grindavíkurnefnd, sem hefur verið starfandi í forsætisráðuneytinu síðastliðið ár, hefur verið í þéttu sambandi við forsvarsfólk bæjarins og auðvitað íbúa eftir atvikum. Ég geri mér alveg grein fyrir því að margir Grindvíkingar eru eðlilega óþreyjufullir eftir því að komast aftur heim. Ég sýni því mikinn skilning. Hvernig endurreisnin fer af stað skiptir hins vegar gríðarlega miklu máli. Já, það eru þættir í endurreisnaráætluninni sem eru ekki tímasettir vegna þess að við höfum verið að horfa til þess að atburðurinn er enn þá í gangi. Það er enn þá mikið kvikumagn undir Svartsengi og það liggur alveg fyrir að áður en farið verður af stað með ákveðna hluta endurreisnar þá þarf okkur að líða aðeins betur með stöðuna varðandi jarðhræringar, m.a. mat á því, eins og hv. þingmaður bendir réttilega á, hver sé ásættanleg áhætta til búsetu þarna á svæðinu, til skólahalds og annars. Í ofanflóðum þegar kemur að snjóflóðum eða aurskriðum þá höfum við til að mynda skýrar reglur eða mat á því sem kallast ásættanleg áhætta um hvenær er hægt að dvelja á stöðum undir slíkum kringumstæðum. Slíkt er ekki til fyrir náttúruvá. Það er verið að hanna það núna, þessi vinna er bara að fara af stað og myndi skapa ákveðinn ramma og forsendur fyrir því að m.a. skólahald gæti hafist og fólk gæti flutt inn í ákveðna hluta bæjarins. En ég vek athygli á því að það er auðvitað ekkert óheimilt að dvelja í Grindavík. Spurningin er bara já, hvernig ríkið beiti sér. Við stýrum ekki með beinum hætti Þórkötlu en Þórkatla er auðvitað að velta fyrir sér framtíðaruppbyggingu þarna og hvernig best verði farið með þessar eignir. Þess vegna er verið að reyna að stíga þessi skref samhliða og að áhættumat liggi fyrir áður en farið er af stað í þessa vegferð.