fjárheimildir til heilbrigðismála vegna fjölgunar og öldrunar þjóðarinnar.
Frú forseti. Íbúafjöldi og fjöldi ferðamanna hefur vaxið hratt á tveimur svæðum á landinu, Suðurlandi og Suðurnesjum. Á tímabilinu 2019–2026 jókst íbúafjöldi á Suðurlandi um tæplega 7.400 manns eða um 25%. Fjöldi íbúa á Suðurnesjum jókst um 12% á sama tíma. Að auki fara langflestir ferðamenn um þetta svæði eða 2,4 milljónir á ári. Þetta leiðir hugann að samhenginu annars vegar á milli fjárheimilda til heilbrigðismála og aukningar íbúafjölda og fjölda ferðamanna á tilteknum svæðum. Fjármagn til heilbrigðismála á þessum stöðum beinist sérstaklega að Heilbrigðisstofnun Suðurlands, sem er staðsett á Selfossi en þjónar öllu svæðinu frá Ölfusi til Hafnar, og líka að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, sem þjónar Suðurnesjunum í heild. Þessar stofnanir eru að taka við gríðarlega miklu álagi, langt umfram álagið sem er á öðrum svæðum landsins. Fjárlög 2026 sýna að almenn aukning fjárheimilda vegna fólksfjölgunar og öldrunar er reiknuð á landsvísu og fjárlög virðast ekki endurspegla þennan mikla vöxt á þessum svæðum. Með ákveðinni einföldun virðist eins og gert sé ráð fyrir 1–2% hækkun fjárheimilda til heilbrigðismála til að mæta raunvexti í fjölgun íbúa og öldrun þjóðarinnar en raunverulegur vöxtur bara á Suðurlandi hefur verið 3,5–4% á undanförnum árum.
Ég sé að í nýrri fjármálaáætlun er vissulega lögð áhersla á að styrkja heilbrigðiskerfið en þar er undirstrikuð þessi áskorun að halda í við fjölgun sömuleiðis. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig hyggst ráðherrann tryggja að fjárheimildir til heilbrigðismála næstu ár, samanber fjármálaáætlun, taki sérstaklega mið af hraðri fólksfjölgun og öldrun (Forseti hringir.) og breyttri þjónustuþörf eins og birtist skýrt á Suðurlandi og Suðurnesjum?