fjárheimildir til heilbrigðismála vegna fjölgunar og öldrunar þjóðarinnar.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir spurninguna. Það er alveg rétt að okkur fjölgar hratt og hingað hafa komið margir ferðamenn. Það gildir almennt í fjármálaáætlun og fjárlögum að raunvöxtur er reiknaður upp á 1,8% en t.d. á Landspítala hefur því verið flaggað að hann ætti að vera 2,8%. Ég hef ekki fengið beiðni frá þessum stofnunum sérstaklega en auðvitað vinnur ríkisstjórnin að því að styrkja heilbrigðisþjónustu um allt land. Suðurland er þar ekki undanskilið og okkur tókst að gefa inn á síðasta ári og síðan eru auðvitað heilbrigðismál í miklum forgrunni í fjármálaáætlun.
Hvað varðar Heilbrigðisstofnun Suðurlands þá gengur starfsemi þar vel. Þar eru fjölmörg frábær verkefni í gangi eins og rekstur heimaspítala, sérstök móttaka fyrir börn í ofþyngd og fleira mætti telja. Þar setja húsnæðismálin starfseminni verulegar skorður og nú er í undirbúningi viðbygging við Heilbrigðisstofnun Suðurlands þar sem við erum þegar búin að leggja til fjármuni þannig að það er heilmikið verið að gera til að byggja upp þessa þjónustu. En varðandi spurninguna þá er það rétt að við þurfum að taka betur til skoðunar hvernig við gefum inn fyrir raunvexti almennt.