mansal á Íslandi.
Frú forseti. Ég hygg að hv. þingmaður hafi verið að vísa til þess að nöfn séu ekki birt í vændiskaupamálum. Í því máli í þar sem sakfellingardómur féll í mansalsmáli birtist nafn. Ég er þeirrar skoðunar að veikt regluverk og lítið eftirlit sé alltaf óvinur þeirra sem eru í veikri stöðu og viðkvæmri stöðu. Það á við um meginþorra þeirra stúlkna og kvenna sem hingað eru fluttar til lands og eru lokaðar inni í herbergjum dögum saman við ömurlegar aðstæður. Við viljum að það sé eftirlit og sterkara regluverk.
Með nafnleyndina er ég þeirrar skoðunar að það væru sterk varnaðaráhrif í því að fara að birta nöfn þeirra sem kaupa vændi og er með það mál til skoðunar núna en ég er ekki síst með það til skoðunar hvort brotin ættu í öllum tilvikum að varða ákæru en ekki bara lögreglustjórasekt. Við viljum eiga við eftirspurnina. Þetta er verkfærið til þess.