157. löggjafarþing — 105. fundur,  30. apr. 2026.

jöfn staða og jafn réttur kynjanna.

297. mál
[11:22]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er gleðidagur í dag hjá okkur hæstv. dómsmálaráðherra, sem á hrós skilið. Það er til eftirbreytni fyrir okkur öll sem vinnum við stjórnmál að festast ekki í pólitískum kreddum. Það er ekki allt sem við beitum okkur fyrir sem mun ganga vel eða mun reynast vel og þá þarf að horfast í augu við það og gera nauðsynlegar breytingar eins og hæstv. dómsmálaráðherra fer hér fyrir í dag. Í atkvæðagreiðslu dagsins styðjum við Sjálfstæðismenn breytingar hæstv. ráðherra heils hugar þar sem hún leggur til að leggja niður jafnlaunavottun í núverandi mynd. Hæstv. ráðherra leggur í stað þess til nýtt og léttara kerfi um skyldubundna skýrslugjöf. Við Sjálfstæðismenn hefðum viljað ganga lengra og leggjum því til að skýrslugjöfin verði með öllu valkvæð. Nóg er af álögum og kvöðum á íslenskt atvinnulíf.