157. löggjafarþing — 105. fundur,  30. apr. 2026.

jöfn staða og jafn réttur kynjanna.

297. mál
[11:23]
Horfa

Sandra Sigurðardóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við erum hér komin til að greiða atkvæði um þessa breytingu. Mig langar að þakka ráðherra fyrir sína vinnu og nefndinni fyrir vel unnin störf. Hér erum við ekki að hvika frá meginkröfum eða gefa afslátt af jöfnum launum milli kynja. Hér erum við einfaldlega að minnka umfangið og koma til móts við atvinnulífið. Við höfum fundið línuna og við erum hvorki að ganga of langt né of skammt. Hér erum við að tala um reglubundna skýrslugjöf á þriggja ára fresti í stað einu sinni á ári. Ég fagna þessu og ég hlakka til að greiða atkvæði á eftir.