jöfn staða og jafn réttur kynjanna.
Virðulegur forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur, svo sannarlega er rétt að hrósa hæstv. ráðherra fyrir að stíga þessi skref. Það vita það allir sem hafa þurft að koma að þessu að þetta hefur ekki náð þeim tilætlaða árangri sem menn stefndu að í upphafi. Það væri þess vegna langhreinlegast og best fyrir okkur að styðja tillögu okkar Sjálfstæðismanna. Því að þegar þú ert með fyrirkomulag sem er ótrúlega dýrt, og jafnvel þó að það geri eitthvað ódýrara en er ekki að skila tilætluðum árangri, þá eigum við bara að hafa það valkvætt. Það verður ekkert minna jafnrétti á Íslandi ef við styðjum tillögu okkar Sjálfstæðismanna.