157. löggjafarþing — 105. fundur,  30. apr. 2026.

jöfn staða og jafn réttur kynjanna.

297. mál
[11:25]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég efa það ekki að hugmyndir Viðreisnar á sínum tíma um jafnlaunavottun hafi verið góðar og gildar og að hugmyndafræðin hafi verið að jafna kjör milli kynja á markaði. Við höfðum alla tíð áhyggjur af því að þetta væri of íþyngjandi fyrir atvinnulífið, bara fyrir venjuleg fyrirtæki. Það er því gleðilegt að Viðreisn sjálf skuli hafa áttað sig á því að Viðreisnarleiðin sé ómöguleg og að það þurfi að falla frá henni. Það er gleðilegt þegar menn opna augu sín fyrir því að þeir hafi verið á rangri leið. Við í Framsókn styðjum það. Það gefur líka væntingar, frú forseti, um að þeir flokkar sem nú stjórna landinu og eru haldnir þeirri kreddu, sérstaklega Viðreisn, að eina leið Íslands til þess að fara út úr öllum þeim efnahagsvandræðum, sem við rötum stundum sjálf í en þurfum augljóslega sjálf að fara út úr, sé að ganga í Evrópusambandið — ég vona að eftir tíu ár geti ég staðið hér, eða einhver annar, og sagt: (Forseti hringir.) Það er gleðilegt þegar Viðreisn sér ljósið og snýr af braut ranginda sinna, þó að þeir hafi gert það af (Gripið fram í.) góðum hug. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)